Frjáls verslun - 01.10.2013, Blaðsíða 56
56 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013
græjur
Bylting eða meira af því sama?
Það er ekki á hverjum degi sem ný kynslóð leikjatölva lítur dagsins ljós – frá
því að fyrsta PlayStation-tölvan frá Sony kom út árið 1994 hafa jafnan liðið
sex til sjö ár milli kynslóða. Það eru því spennandi tímar framundan:
Næsta kynslóð leikjatölvanna
Nýjar leikjatölvur frá risunum tveimur á mark
aðnum, Sony og Microsoft, eru nýkomn ar
út vestanhafs og munu fljótlega koma út á
öðr um mörkuðum. Því miður er Ísland ekki
ofarlega á forgangslista leikjatölvufram leið
enda og ekki búist við að fyrstu tölvurnar
komi í verslanir hér á landi fyrr en í byrjun
næsta árs.
PlayStation 4 og Xbox One munu þó að
sjálfsögðu skila sér hingað á endanum
og í millitíðinni er lítið hægt að gera annað
en fylgjast með viðtökunum erlendis.
Þegar þetta er skrifað er enn ekki ljóst hver
almanna rómur verður. Margir helstu
fræðingar leikjatölvubransans
hafa þó spáð í spilin, rýnt í
þær upplýsingar sem birtar
hafa verið um innvols tölv
anna og uppbyggingu og
velt fyrir sér hvor risanna
tveggja muni hafa betur í
baráttunni.
Enginn hefur
verið lýstur
sigurvegari fyrirfram. Á pappírunum er
vélbúnaður tölvanna nokkuð svipaður að
því helstu undan skildu að Xbox One verður
með innbyggða Kinect myndavél en fyrir
PlayStation 4 þarf að kaupa myndavélina
sérstaklega. Þess sér líka mun á verði tölv
anna, því Xbox One verður 100 dollurum
dýrari en PlayStation við útgáfu.
PlayStation 4 er nokkru ódýrari
en Xbox One.
Nokia lumia 1020
snjallsími (verð frá 129.900 kr., t.d. hjá helstu símafyrirtækjum). Þótt
Nokia hafi enn ekki náð vopnum sínum á snjallsímamarkaðnum er fyrirtækið
í fararbroddi á einu sviði snjallsímatækninnar: Myndavélunum. Það er eigin
lega móðgun við Nokia 1020 að kalla hann snjallsíma, því þetta er eiginlega
frekar snjallmyndavél sem hægt er að tala í. Lumia 1020 er með hvorki meira
né minna en 41 megapixils myndavél sem tekur frábærar myndir auk þess
að vera með öflugt flass, þannig að þú ert alltaf með fyrsta flokks myndavél í
farteskinu ef Nokia Lumia 1020 er síminn þinn. Myndavélin gerir hann reynd
ar talsvert klunnalegri en venjulega snjallsíma, en það skiptir ekki öllu ef þú
getur í staðinn hætt að ganga með myndavélina á þér.
Samsung Gear
snjallúr (verð frá 49.990 kr., t.d. hjá helstu
símafyrirtækjum). Armbandsúr sem maður talar
í hafa lengi bara verið til í vísindaskáldsögum en
á þessu ári færðumst við skrefi nær því að þau
verði að veruleika. Gearúrið frá Samsung er langt
í frá fullkomið, en það er fyrsta skrefið í að gera
okkur kleift að nýta risastóru snjallsímana okkar til
fullnustu án þess að vera alltaf með þá fyrir framan
okkur eða við eyrað. Gear tengist nokkrum af dýr
ari snjallsímum Samsung og getur þannig komið
mikilvægum skilaboðum til eigenda sinna án þess
að þeir þurfi að sækja símann í vasann. Og svo er
hægt að tala í það, sem er auðvitað eitursvalt!