Frjáls verslun - 01.10.2013, Blaðsíða 95
FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 95
Það gekk samt ekki
snurðulaust að koma
Mary Poppins á filmu.
Tuttugu ár liðu frá
því Disney lofaði
dætrum sínum kvik-
mynd um hana þar
til höf undurinn, hin
einstrengingslega P.L.
Travers, samþykkti
hand ritið.
Travers var mjög flókin
persóna. Það er enginn
vafi að alkóhólismi
föður hennar og sjálfs -
morðstilraun móður
hennar höfðu varanleg
á áhrif á líf hennar
og gerðu hana þung-
lynda.
Poppins, sem henni þótt af
leitt. Þá fannst henni heimili
Banksfjölskyldunnar alltof fínt.
Það hafði engin áhrif á skoðanir
hennar að myndin gerði hana
að mjög ríkri konu.
Vonast eftir óskarstil
nefningum
Tom Hanks og Emma Thomp
son fara með aðalhlutverkin
í Saving Mr. Banks. Handrit
mynd arinnar var tilbúið fyrir
nokkrum árum og árið 2011
völdu framleiðendur í Hollywood
það eitt af bestu handritum sem
ekki voru komin í framleiðslu.
Höfundur þess er Kelly Marcel,
sem þessa dagana er að skrifa
kvikmyndahandrit eftir met sölu
bókinni Fifty Shades of Grey.
Það var ekki fyrr en Tom Hanks
samþykkti að leika Disney að
hjólin fóru að snúast. Reynt var
að fá Meryl Streep til að leika
Travers en hún var ekki á lausu
og þegar BBC kom inn í fram
leiðsluna var Emma Thompson
valin og framleiðend ur þurfa
ekki að sjá eftir þeirri ákvörðun.
Saving Mr. Banks fer í almenn
ar sýningar í Bandaríkjunum
20. desember og er talin koma
sterklega til greina til óskars
verðlauna. Sýningardagurinn er
einmitt valinn til að myndin sé
fersk fyrir kvikmyndaakadem
íuna sem ákveður tilnefningarn
ar. Saving Mr. Banks hefur
þegar verið sýnd á nokkrum
kvikmyndahátíðum og fengið
mjög góðar viðtökur gagn
rýnenda og er frammistaða
Emmu Thompson sérstaklega
hælt. Ekki síðri þykir leikur Toms
Hanks í hlutverki Walts Disneys
og er þetta í fyrsta skipti sem
Walt Disney er aðalpersóna í
kvikmynd.
Margir þekktir leikarar eru í
aukahlutverkum: Colin Farrell
leikur föður Travers og þykir
ekki hafa gert betur í langan
tíma, Ruth Wilson, sem margir
kannast við úr sjónvarpsþátta
röðinni Luther, leikur móður
hennar, Paul Giamatti leikur
bílstjóra Travers í Hollywood,
Jason Schwartzman og B.J.
Novak leika bræðurna Robert
og Richard Sherman og ung
og lítt þekkt leikkona, Victoria
Summer, leikur Julie Andrews.
Einnig koma við sögu leikkon
urnar Kathy Baker og Rachel
Griffiths.
Emma Thompson setti sig vel
inn í hlutverk Travers og kynnti
sér ævi hennar og sagði þegar
hún var spurð um hana: „Hún
var mjög flókin persóna. Það er
enginn vafi að alkóhólismi föður
hennar og sjálfsmorðstilraun
móður hennar höfðu varanleg
á áhrif á líf hennar og gerðu
hana þunglynda. Kannski hefur
það átt þátt í hversu góður
rithöfund ur hún var að hún lifði
einangruðu lífi alla ævi.“ Tom
Hanks undirbjó sig ekki síður
vel og var meðal annars með í
bílnum sínum margar upptökur
af rödd Disneys sem hann
hlustaði vel á til að ná þeirri
hrynj andi sem einkenndi málfar
Disneys og æfði röddina með
því að lesa upphátt úr dagblöð
um.
Hæðir og lægðir leik
stjórans
Leikstjóri Saving Mr. Banks er
John Lee Hancock sem er best
þekktur fyrir að leikstýra The
Blind Side, en sú kvikmynd var
tilnefnd til óskarsverðlaunanna
sem besta kvikmynd og Sandra
Bullock fékk óskarinn fyrir leik í
henni. Hancock leikstýrði sinni
fyrstu kvikmynd, Hard Time
Romance, árið 1991 og skrifaði
einnig handritið að henni. Ekki
urðu leikstjórnarverkefnin fleiri á
næstu árum en honum gekk vel
sem handritshöfundur, skrifaði
m.a. handritin að A Perfect
World og Midnight in the Gard-
en of Good and Evil. Leikstýrði
síðan The Rookie, 2001, sem
fékk afbragðsviðtökur. Ekki er
hægt að segja það sama um
næstu kvikmynd hans, The
Ala mo, sem er í annálum minnst
sem einnar lélegustu stórmynd
ar sem gerð hefur verið og er
í öðru sæti yfir kvikmyndir sem
mest tap hefur orðið á. Það tók
Hancock fimm ár að verða sér
úti um annað leikstjórnarverk
efni. The Blind Side kom honum
aftur á réttan kjöl og miðað við
þær viðtökur sem Saving Mr.
Banks hefur þegar fengið ætti
framtíð hans að vera trygg í
kvikmyndabransanum.
Jason Schwartzman og B.J. Novak leika tónlistarbræðurna Robert og Richard Sherman, sem sömdu
lögin í Mary Poppins.
Á þessari mynd af Julie Andrews, Walt Disney og P.L. Travers, sem
tekin var eftir frumsýningu á Mary Poppins, sést Travers brosa en var
allt annað en ánægð með myndina eins og kemur fram í Saving Mr.
Banks.