Frjáls verslun - 01.10.2013, Blaðsíða 73
FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 73
Eitt af aðalsmerkjum Ölgerða r innar er framúrskar andi góð þjónusta gagnvart
birgj um, smásöluaðilum og
neyt end um. Fyrirtækið er
með öflugt þjón ustuver, sem
svarar símtölum og tekur
við pöntunum. Auk þess er
þjón ustu deildin á vakt nær
allan ársins hring. Starfs fólk
Ölgerðar innar stefnir sam stiga
í átt að framtíðarsýn fyrirtæki -
sins; að verða fyrsta val við -
skipta vina.
Jafnlaunavottun á kven
rétt indadaginn
Hvenær hlaut Ölgerðin jafn
launa vottun VR og hvaða þýð
ingu hefur hún fyrir starfsfólk
ykkar?
Þær stöllurnar Svanhildur
Sigurðardóttir, samskipta- og
samfélagsstjóri Ölgerðarinnar,
og Elísabet Einarsdóttir starfs -
mannastjóri sitja fyrir svörum
og segja stoltar í bragði að
fyrir tækið hafi hlotið jafn launa -
vottunina á kvenrétt inda dag inn;
19. júní.
„Það staðfesti þá venju sem
Ölgerðin hefur lengi haft að
leiðarljósi; að greiða konum og
körlum sömu laun fyrir jafn -
verð mæt störf. Vottunin hefur
mikla þýðingu fyrir starfs fólkið
okkar, það er mjög jákvætt fyrir
starfsandann að fá úttekt frá
óháðum aðila um að greidd
séu sömu laun fyrir sömu störf.
Þessi staðfesting á jöfnum laun -
um stuðlar vonandi enn frekar
að því að fleiri konur sæki um
störf hjá okkur.“
Þjóðinni þökkuð sam
fylgdin
Hvað er helst á döfinni hjá
fyrirtækinu?
„Við erum enn í skýjunum
yfir vel heppnaðri heimsókn
Indru Nooyi, forstjóra Pepsi-
Co, en hún heimsótti Ölgerð ina
í tilefni hundrað ára afmælis
fyrirtækisins og talaði m.a.
til starfsfólksins á vikuleg um
starfsmannafundi. Í Þjóðleik-
hús inu var svo haldinn hátíðar-
fundur Ölgerðarinnar fyrir
viðskiptavini og fleiri hags-
munaaðila. Nú er einnar aldar
afmælis árinu að ljúka og veitti
Ölgerðin hundrað milljónir
króna til samfélagsverkefna
á árinu í tilefni afmælisins.
Öl gerðin, sem er rótgróið
fyrir tæki, hefur ævinlega lagt
áherslu á gott samband við
þjóðina og með þessum sam -
félags verkefnum vildi fyrir tækið
gefa af sér og þakka þjóðinni
samfylgdina síðustu hundrað
árin. Tekin var sú ákvörðun
að tíu krónur af hverri seldri
flösku af malti skyldu renna
til Slysavarnafélagsins Lands -
bjargar og var haldin sérstök
sjónvarpssöfnun af því tilefni.
Okkur fannst að Landsbjörg
ætti svo sannarlega skilið
að njóta þess að Íslendingar
drekka malt.“
Jákvæðni í jólamánuðinum
Hvernig er stemningin hjá
starfsfólki Ölgerðarinnar í
jólamánuðinum?
„Hjá okkur ríkir góð stemning
og fólk er farið að skreyta í
kringum sig hér innanhúss.
Það er mikil orka og gleði á
háannatímum yfir hátíðarnar,
þar ber helst að nefna jólaleik
sem er í gangi þar sem allt
starfsfólk Ölgerðarinnar er
hvatt til að hrósa hvert öðru.
Þá verðum við með jóla hlað-
borð til að fá frí frá ann ríkinu
og allir starfsmenn geta lyft
sér upp með mökum. Svo -
kall að J-gildi er ríkjandi sem
aldrei fyrr í jólamánuðinum
en það stendur fyrir jákvæðni
og felst í því að við leitumst
við að finna jákvæða fleti á
öllum málaflokkum, nálgast
þá á jákvæðan hátt og hvetja
starfs fólk og samstarfsaðila til
þátttöku.
Vörur okkar eru margar vin-
sælar yfir hátíðarnar, eins og
Egils-malt og -appelsín eru
hreinlega orðin hluti af DNA
Íslendinga! Það eru engin
jól án þeirra og svo auðvitað
Mackintosh. Þá hefur jólabjór
vaxið í vinsældum undanfarin
ár og nú býður Ölgerðin uppá
fimm mismunandi tegundir
þetta árið!
Hundrað samfélagsverk
efni ölgerðarinnar
Ölgerðin hefur frá upphafi sýnt
ábyrgð gagnvart samfélaginu
og breiður hópur starfsmanna
hefur skilgreint hundrað
samfélagsverkefni sem mynda
grunnlínu í samfélagsábyrgð
Ölgerðarinnar.
Snertifletir Ölgerðarinnar eru
margir og fjölbreyttir.
Af þeim sökum hefur á
undanförnum tveimur árum
verið unnið markvisst að því
að marka félaginu skýra stefnu
um samfélagslega ábyrgð.
Við þá vinnu kom í ljós að
mikilvægustu snertifletirnir í
starfsemi Ölgerðarinnar eru
við samfélagið, umhverfið,
markaðinn og fyrirtækið.
Ölgerðin er aðili að Global
Compact-verkefni Sameinuðu
þjóðanna, en með því tileinkar
hún sér tíu viðmið um
samfélagsábyrgð fyrirtækja
og skilar árlega inn skýrslu
um hvernig tekist hefur að
uppfylla viðmiðin. Alls taka
fjögur þúsund og sjö hundruð
fyrirtæki þátt í verkefninu
um allan heim, þar af fjögur
hundruð á Norðurlöndunum.
Fjölbreyttur hópur starfsfólks
skilgreindi fjölda mælanlegra
markmiða og í tilefni af
hundrað ára afmælisári var
ákveðið að ráðast í hundrað
verkefni sem samfélagsábyrgð.
Í framtíðinni munum við kappkosta að bæta okkur á alla mögulega vegu,
hvort sem um er að ræða í
notkun hráefna og auðlinda,
endurvinnslu, orkusparnaði,
upplýsingum til viðskiptavina
og neytenda eða fækkun ekinna
kílómetra í dreifingu ásamt
þeim fjölmörgu atriðum sem
sýna að við störfum í íslensku
samfélagi af ábyrgð.
ÖLGERðIN:
Starfsfólkið Samstíga í framtíðarsýn
Lykillinn að velgengni fyrirtækja er að miklu leyti fólginn í hversu dýrmætur mannauður þeirra er. Ölgerðin leggur því höfuð-
áherslu á að hjá fyrirtækinu starfi menntað, hæft og áhugasamt starfsfólk sem sameiginlega skapar metnaðarfullt og jákvætt
vinnuumhverfi.
Hrund HauksdóTTir / Myndir: Geir ólafsson ofl.