Frjáls verslun - 01.10.2013, Blaðsíða 12
12 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013
Nokkuð hefur verið rætt og ritað um virkni starfsfólks í vinnu. Hér á Íslandi
hefur umræðan upp á síðkastið ekki síst verið eftir að fyrirtækið MMR birti fyrr á þessu
ári upplýsingar um nýjustu stöðu gagnagrunns síns sem nefnist Ísland í vinnunni.
Gagnagrunnurinn geymir svör starfandi fólks á Íslandi, óháð stétt eða starfsgrein.
Í gagnagrunninum eru rúm lega 50 breytur sem skil greina árangur og líðan fólks í starfi og hvaða þættir hafa áhrif þar á.
Þessar breytur eru notaðar til
að gera ítarlega og nákvæma
kortlagningu á því hvaða atriði
það eru í starfsumhverfinu
og á vinnustaðnum sem hafa
áhrif á „virkni“ allra Íslendinga
í vinn unni. Virkni er mæld út
frá trú fólks á starf sitt og
sameigin lega framtíð sína með
fyrirtækinu. (Upplýsingar fengn
ar af www.mmr.is.)
Í nýjustu niðurstöðunum hjá
MMR kom meðal annars fram
að einungis 34% starfsfólks á
íslenskum vinnumarkaði eru virk
í vinnunni, þ.e. hafa trú á starfi
sínu og sameiginlegri framtíð
sinni og fyrirtækisins.
Heil 22% mælast svo óvirk,
hafa ekki trú á starfi sínu eða
sameiginlegri framtíð sinni
og fyrirtækisins. Þessir óvirku
starfsmenn eru einnig yfirleitt
neikvæðir, óánægðir og taka
ekki þátt í að vinna að markmið
um vinnustaðarins, vinna jafnvel
gegn þeim og geta verið sem
skemmd epli á vinnustaðn
um sem skemma út frá sér.
Rannsóknir hafa að auki sýnt að
óvirkir starfsmenn eru alla jafna
með meiri fjarvistir, sem alkunna
er að kostar vinnustaði mikla
fjármuni.
Hvað þýða þessar tölur
fyrir vinnustaði?
Ef við leikum okkur aðeins með
tölur og ímyndum okkur 100
manna vinnustað þar sem allir
eru í fullu starfi, þ.e. starfshlut
fall er 100%, og allir fá þar af
leiðandi laun miðað við það.
Af þessum 100 eru þá 34
virkir, ánægðir og að vinna að
markmiðum vinnustaðarins og
svo eru 22 óvirkir, neikvæðir
og að vinna gegn markmiðum
vinnu staðarins.
Hinir 44 eru tiltölulega hlut-
lausir. Það sem einkennir þá
gæti verið eftirfarandi:
1. Nýir á vinnustaðnum eða
í nýju starfi á vinnu
staðnum og ekki með
forsendur til að hafa náð
fullri virkni.
2. Mjög uppteknir og dug
legir í starfi en eru ekki
endilega að vinna að
þeim þáttum sem skipta
mestu máli fyrir starfið
eða vinnustaðinn.
3. Mjög sáttir við að vera
búnir að koma sér þægi
lega fyrir á vinnustaðnum,
leggja ekki of mikið á
sig og enginn er að spá
í virkni eða framleiðni
þeirra.
4. Geta unnið mjög vel en
eru að brenna út t.d.
vegna skorts á endurgjöf
og stuðningi.
stjórnun
HerDíS PáLA
MBA, markþjálfi og
eigandi www.herdispala.is
þar sem hægt er að skrá sig
fyrir ýmsu ókeypis og
hvetjandi lesefni.
Þessir óvirku starfs-
menn eru einnig
yfirleitt neikvæðir,
óánægðir og taka ekki
þátt í að vinna að
markmiðum vinnu-
staðarins, vinna jafn-
vel gegn þeim og geta
verið sem skemmd
epli á vinnustaðnum.
Hver er virkni starfsfólks
á þínum vinnustað?