Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2013, Side 12

Frjáls verslun - 01.10.2013, Side 12
12 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 Nokkuð hefur verið rætt og ritað um virkni starfsfólks í vinnu. Hér á Íslandi hefur umræðan upp á síðkastið ekki síst verið eftir að fyrirtækið MMR birti fyrr á þessu ári upplýsingar um nýjustu stöðu gagnagrunns síns sem nefnist Ísland í vinnunni. Gagnagrunnurinn geymir svör starfandi fólks á Íslandi, óháð stétt eða starfsgrein. Í gagnagrunninum eru rúm lega 50 breytur sem skil greina árangur og líð­an fólks í starfi og hvaða þættir hafa áhrif þar á. Þessar breytur eru notaðar til að gera ítarlega og nákvæma kortlagningu á því hvaða atriði það eru í starfsumhverfinu og á vinnustaðnum sem hafa áhrif á „virkni“ allra Íslendinga í vinn unni. Virkni er mæld út frá trú fólks á starf sitt og sameigin lega framtíð sína með fyrirtækinu. (Upplýsingar fengn­ ar af www.mmr.is.) Í nýjustu niðurstöðunum hjá MMR kom meðal annars fram að einungis 34% starfsfólks á íslenskum vinnumarkaði eru virk í vinnunni, þ.e. hafa trú á starfi sínu og sameiginlegri framtíð sinni og fyrirtækisins. Heil 22% mælast svo óvirk, hafa ekki trú á starfi sínu eða sameiginlegri framtíð sinni og fyrirtækisins. Þessir óvirku starfsmenn eru einnig yfirleitt neikvæðir, óánægðir og taka ekki þátt í að vinna að markmið­ um vinnustaðarins, vinna jafnvel gegn þeim og geta verið sem skemmd epli á vinnustaðn­ um sem skemma út frá sér. Rannsóknir hafa að auki sýnt að óvirkir starfsmenn eru alla jafna með meiri fjarvistir, sem alkunna er að kostar vinnustaði mikla fjármuni. Hvað þýða þessar tölur fyrir vinnustaði? Ef við leikum okkur aðeins með tölur og ímyndum okkur 100 manna vinnustað þar sem allir eru í fullu starfi, þ.e. starfshlut­ fall er 100%, og allir fá þar af leiðandi laun miðað við það. Af þessum 100 eru þá 34 virkir, ánægðir og að vinna að markmiðum vinnustaðarins og svo eru 22 óvirkir, neikvæðir og að vinna gegn markmiðum vinnu staðarins. Hinir 44 eru tiltölulega hlut- lausir. Það sem einkennir þá gæti verið eftirfarandi: 1. Nýir á vinnustaðnum eða í nýju starfi á vinnu­ staðnum og ekki með forsendur til að hafa náð fullri virkni. 2. Mjög uppteknir og dug­ legir í starfi en eru ekki endilega að vinna að þeim þáttum sem skipta mestu máli fyrir starfið eða vinnustaðinn. 3. Mjög sáttir við að vera búnir að koma sér þægi­ lega fyrir á vinnustaðnum, leggja ekki of mikið á sig og enginn er að spá í virkni eða framleiðni þeirra. 4. Geta unnið mjög vel en eru að brenna út t.d. vegna skorts á endurgjöf og stuðningi. stjórnun HerDíS PáLA MBA, markþjálfi og eigandi www.herdispala.is þar sem hægt er að skrá sig fyrir ýmsu ókeypis og hvetjandi lesefni. Þessir óvirku starfs- menn eru einnig yfirleitt neikvæðir, óánægðir og taka ekki þátt í að vinna að markmiðum vinnu- staðarins, vinna jafn- vel gegn þeim og geta verið sem skemmd epli á vinnustaðnum. Hver er virkni starfsfólks á þínum vinnustað?

x

Frjáls verslun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.