Frjáls verslun - 01.10.2013, Blaðsíða 22
22 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013
Girnilegu gjafakörfurnar
úr Ostabúðinni
Jóhann Jónsson, fram kvæmdastjóri Osta búð arinnar, efast ekki um að jólakörfurnar muni halda vinsældum sínum og sé skýringuna líklega að finna í þeirri staðreynd að körfurnar eru bæði fallegar og sýnilegar.
Jólakörfurnar – hafa slegið í gegn um árabil
„Körfurnar eru flottar og per sónu legar gjafir sem bjóða upp
á þann mögleika að gefandinn gefi hugmyndafluginu lausan
tauminn og velji ýmislegt góðgæti. Gjarnan er skemmti legum
hlutum stungið með, eins og t.d. geisladiskum og bókum
sem höfða sérstaklega til við komandi þiggjanda. Svo er sí gilt
að láta góða flösku af víni, léttu eða sterku, fylgja með. Ann
ars er þetta bara spurning um hversu miklu fólk vill kosta til
og hvað það kýs að hafa í körfunum.“
Forréttir og franskir ostar
„Best er að panta körfurnar með góðum fyrirvara en rétt fyrir
jól erum við með tvær til þrjár tegundir af körfum fyrir þá sem
þurfa að grípa smart gjöf á síð ustu stundu.
Mörg fyrirtæki hafa það fyrir sið að gefa starfsfólki sínu
körf urnar viku fyrir jólin. Þá er hug myndin sú að gefa fólki
kost á að njóta góðgætisins á að ventunni. Persónlega myndi
ég velja franska osta og ýmsar gerð ir af forréttum sem eru í
miklu uppáhaldi hjá mér. Fólk gefur forréttunum almennt ekki
það mikinn gaum. Það hefur borið meira á því að gefið sé
kjötstykki með þessu, t.d. hamborgarhryggur eða hangikjöt,
en bitarnir eru jafnvel eitt og hálft til fjögur kíló og sumir vilja
hugsanlega ekki fyrirfram völdu tegundina í aðalréttinn. Þetta
þarf aðeins umhugsunar við.
Svo fæst eðalkaffi hjá Kaffi félaginu hér við hliðina – sem ég mæli hiklaust með í körfurn ar. Skólavörðustígurinn hefur sannað sig sem frábær versl unargata og sam
vinnan skiptir öllu máli.“
Á aðventunni einkennir líf og fjör annasamt
andrúmsloftið í Ostabúðinni við Skólavörðustíg.
Mikil eftirspurn er eftir girnilegu gjafakörfunum
en þær eru vinsælar í hvers kyns veislum; ýmist
í heimahúsum, fyrir partíum og móttökum.
TexTi: Hrund HauksdóTTir / Mynd: Geir ólafsson
Ostabúðin við Skólavörðustíg er heill heimur af dásemdum
fyrir sælkera. Eðalolíur, spennandi ostar, forréttir og ólífur eru á
meðal aðalsmerkja Ostabúðarinnar.
Ostabúðin Delicatessen - Skólavörðustíg 8 - Sími. 562 - 2772 - ostabudin@ostabudin.is
Opnunartími - Mánudaga - Föstudaga 11 - 18 - Laugardaga 11 - 16
oSTAbúðiN
„Mörg fyrirtæki hafa það fyrir sið að
gefa starfsfólki sínu körfurnar viku
fyrir jólin. Þá er hugmyndin sú að
gefa fólki kost á að njóta góðgætisins
á aðventunni.“