Frjáls verslun


Frjáls verslun - 01.10.2013, Page 22

Frjáls verslun - 01.10.2013, Page 22
22 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013 Girnilegu gjafakörfurnar úr Ostabúðinni Jóhann Jónsson, fram kvæmdastjóri Osta búð arinnar, efast ekki um að jólakörfurnar muni halda vinsældum sínum og sé skýringuna líklega að finna í þeirri stað­reynd að körfurnar eru bæði fallegar og sýnilegar. Jólakörfurnar – hafa slegið í gegn um árabil „Körfurnar eru flottar og per sónu legar gjafir sem bjóða upp á þann mögleika að gefandinn gefi hugmyndafluginu lausan tauminn og velji ýmislegt góðgæti. Gjarnan er skemmti legum hlutum stungið með, eins og t.d. geisladiskum og bókum sem höfða sérstaklega til við komandi þiggjanda. Svo er sí gilt að láta góða flösku af víni, léttu eða sterku, fylgja með. Ann ­ ars er þetta bara spurning um hversu miklu fólk vill kosta til og hvað það kýs að hafa í körfunum.“ Forréttir og franskir ostar „Best er að panta körfurnar með góðum fyrirvara en rétt fyrir jól erum við með tvær til þrjár tegundir af körfum fyrir þá sem þurfa að grípa smart gjöf á síð ustu stundu. Mörg fyrirtæki hafa það fyrir sið að gefa starfsfólki sínu körf urnar viku fyrir jólin. Þá er hug myndin sú að gefa fólki kost á að njóta góðgætisins á að ventunni. Persónlega myndi ég velja franska osta og ýmsar gerð ir af forréttum sem eru í miklu uppáhaldi hjá mér. Fólk gefur forréttunum almennt ekki það mikinn gaum. Það hefur borið meira á því að gefið sé kjötstykki með þessu, t.d. hamborgarhryggur eða hangikjöt, en bitarnir eru jafnvel eitt og hálft til fjögur kíló og sumir vilja hugsanlega ekki fyrirfram völdu tegundina í aðalréttinn. Þetta þarf aðeins umhugsunar við. Svo fæst eðalkaffi hjá Kaffi félaginu hér við hliðina – sem ég mæli hiklaust með í körfurn ar. Skólavörðustígurinn hefur sannað sig sem frábær versl unargata og sam­ vinnan skiptir öllu máli.“ Á aðventunni einkennir líf og fjör annasamt andrúmsloftið í Ostabúðinni við Skólavörðustíg. Mikil eftirspurn er eftir girnilegu gjafakörfunum en þær eru vinsælar í hvers kyns veislum; ýmist í heimahúsum, fyrir partíum og móttökum. TexTi: Hrund HauksdóTTir / Mynd: Geir ólafsson Ostabúðin við Skólavörðustíg er heill heimur af dásemdum fyrir sælkera. Eðalolíur, spennandi ostar, forréttir og ólífur eru á meðal aðalsmerkja Ostabúðarinnar. Ostabúðin Delicatessen - Skólavörðustíg 8 - Sími. 562 - 2772 - ostabudin@ostabudin.is Opnunartími - Mánudaga - Föstudaga 11 - 18 - Laugardaga 11 - 16 oSTAbúðiN „Mörg fyrirtæki hafa það fyrir sið að gefa starfsfólki sínu körfurnar viku fyrir jólin. Þá er hugmyndin sú að gefa fólki kost á að njóta góðgætisins á aðventunni.“

x

Frjáls verslun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Frjáls verslun
https://timarit.is/publication/282

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.