Frjáls verslun - 01.10.2013, Blaðsíða 64
64 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013
S
taðlaráð Íslands
gaf út undir lok
árs 2012 staðal um
jafn launakerfi sem
markaði tímamót
í jafn réttisbarátt unni,“ segir
Ólafía B. Rafnsdóttir, formaður
VR. „Upphafið að útgáfu hans
má rekja til ákvæðis í jafn réttis -
lögum og samþykktar aðila
vinnumarkað arins í kjara samn-
ingum árið 2008. Staðlaráði
Íslands var falið, á kvenna frídeg -
inum í október það ár, að hafa
umsjón með gerð staðalsins sem
síðan leit dagsins ljós í desember
í fyrra.“
Ólafía segir að staðallinn hafi
það að markmiði að aðstoða
fyrirtæki og stofnanir við að
koma á launajafnrétti kynjanna
á vinnustað sínum og viðhalda
því. Þau fyrirtæki og þær
stofn anir, sem uppfylla kröfur
staðals ins, eiga möguleika á að
fá vottun um að konur og karlar
sem þar starfa njóti jafnra launa
og fái sömu kjör fyrir sömu eða
jafnverðmæt störf.
Viðhaldi launajafnrétti
Forsendur þess að fyrirtæki
og stofnanir innleiði jafn -
launa staðalinn eru að þau
móti launastefnu, geri jafn -
réttis áætlun og láti gera a.m.k.
eina launa greiningu en það er
kerfi s bundin úttekt á launum
og kjörum starfsmanna í þeim
tilgangi að kanna hvort kyn -
bundinn launamunur fyrir-
finnist. Að auki þarf fyrirtækið
eða stofnunin að móta jafn-
launa stefnu, ákvarða jafn launa -
við mið og skilgreina og flokka
störf samkvæmt ÍSTARF 95,
íslenskri starfaflokkun Hag-
stofunnar.
Staðallinn gerir líka þær
kröf ur til fyrirtækja að þau
við haldi launajafnrétti. Þetta
þurfa fyrirtækin að gera á
kerfis bundinn hátt og tryggja
að launa ákvarðanir séu í takt
við markmið fyrirtækisins
sam kvæmt launastefnu þess.
Greiða verður laun í samræmi
við skilgreint virði starfsins
og launaviðmið verða að vera
málefnaleg. Þá gerir staðallinn
kröfu um innri úttektir og rýni
stjórnenda.
eftirfylgni til þriggja ára
Jafnlaunavottun VR var hleypt
af stokkunum í febrúar á þessu
ári og miðar að því að jafna
stöðu karla og kvenna á vinnu -
markaði. Hún kemur í beinu
framhaldi af þeirri vinnu
sem hefur átt sér stað innan
félagsins í þessum málaflokki
síðustu ár. Jafnlaunavottun
byggist á jafnlaunastaðlinum
og er unnin í samstarfi við
umboðsskrifstofu British
Stand ards Institution á Ís-
landi, BSI, sem er viðurkennt
vottunarfyrirtæki með langa
reynslu af vottun og úttektum
samkvæmt ISO-stöðlum. BSI
sér um framkvæmd vott unar-
innar enda gerir jafnlauna vott-
un VR þá kröfu að úttektar aðili
sé óháður.
„Jafnlaunavottun VR felur í
sér viðurkennda aðferðafræði
sem fyrirtæki og stofnanir geta
nýtt sér við að innleiða kröfur
jafnlaunastaðalsins þannig
að þau geti sótt um formlega
vottun á jafnlaunastefnu sinni,“
segir Ólafía. Jafnlaunavottun
VR inniheldur ítarleg viðmið
sem byggjast á kröfum staðals -
ins, faglega úttekt sérfræðinga
og vottun.
„Jafnlaunavottun VR felur í
sér úttekt á kröfum staðalsins
og launum starfsmanna við-
komandi fyrirtækis. Í við -
mið um jafnlaunavottunar er
m.a. kveðið á um eftirfylgni
til þriggja ára, þ.e. fyrirtæki
og stofnanir skuldbinda sig til
að hlíta reglubundnu eftirliti
fagaðila þar sem sannreynt er
að jafnlaunakerfi viðkomandi
fyrirtækis eða stofnunar sé
virkt og að fyrirtækið fylgi
eigin skjalfestu verklagi sem
upp fyllir kröfur staðalsins. Jafn -
launavottun VR gerir líka þær
kröfur að fyrirtæki eða stofnun
bregðist strax við og leiðrétti
ef í ljós kemur óút skýranlegur
launamunur kynjanna.
Á annan tug fengið vottun
Frá því að jafnlaunavottunin
var kynnt í byrjun febrúar á
þessu ári hafa á annan tug
fyrir tækja og stofnana fengið
vottun, um 15 eru komin langt
á leið í ferlinu og svipaður
fjöldi er að hefja sína vegferð.“
Umsjón með jafnlaunavottun
VR fellur undir kjaramálasvið
félagsins enda eru jafnréttismál
kjaramál. Ólafía og sérfræð ing-
ur á kjaramálasviði, Bryndís
Guðnadóttir, hafa undan farna
mánuði farið í fjölda fyrir tækja
og stofnana og kynnt vott un-
ina. „Móttökurnar hafa verið
mjög góðar og ljóst að áhuginn
er mikill í atvinnulífinu, enda
um að ræða öflugt stjórntæki
sem atvinnurekendur geta nýtt
til að tryggja jafnrétti til launa.“
Munum hvergi hvika
Jafnrétti hefur lengi verið eitt
af helstu baráttumálum verka-
lýðshreyfingarinnar og hefur
VR verið í fararbroddi þeirrar
baráttu síðastliðin ár. VR hefur
lagt áherslu á jafnréttismálin
í kjarasamningum og m.a.
sam ið um styttri vinnutíma,
aukinn sveigjanleika og fjöl-
margar bókanir um jafnrétti
kynjanna til launa, starfa og
starfsþróunar. VR hefur einnig
gert árlegar launakannanir
meðal félagsmanna sinna þar
sem staða kvenna er sérstaklega
VR:
Samstillt átak nauðsynlegt
Mikil áhersla hefur verið lögð á baráttuna fyrir jafnrétti á vinnumarkaði síðustu áratugi – einkum jafnrétti karla og kvenna til
launa. Þrátt fyrir að miðað hafi í rétta átt er enn óútskýrður launamunur innan VR samkvæmt niðurstöðum árlegra launakann-
ana félagsins. Konur í VR eru með 9,4% lægri laun en karlar og er ekki hægt að skýra þann mun með vinnutíma karlanna,
starfi þeirra, atvinnugrein, menntun, aldri eða mannaforráðum.
TexTi: svava jónsdóTTir Mynd: Geir ólafsson
jaFnLaunaVottun