Frjáls verslun - 01.10.2013, Blaðsíða 48
48 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013
Við hvaða aðstæður nærðu þínum besta árangri? Hvað er það sem hvetur
þig áfram í starfi, veitir þér innblástur og orku, heldur athygli þinni dagana
langa, ár eftir ár? Svörin við þessum spurningum gætu verið jafnmismun-
andi og við erum mörg. Líklega er þessi fjölbreytileiki helsta ástæðan fyrir
því að það er ekki til ein uppskrift eða töfraformúla að góðum árangri.
En er hægt að segja fyrir um það hvort við munum ná árangri?
Ertu sóknarmaður eða
varnarmaður í viðskiptum?
Ertu sóknarmaður eða varnarmaður? Engin trygging er fyrir því að það sem drífur þig
áfram virki hvetjandi á aðra, svo
sem yfirmann þinn, samstarfs
menn eða undirmenn.
Heidi Grant Halvorson og E.
Tory Higgins rituðu áhugaverða
grein um þetta viðfangsefni í
marshefti Harvard Business
Review á þessu ári. Fyrirsögn
greinarinnar er „Know what
really motivates you“.
Í greininni er fjallað um tvær
mis munandi persónugerðir
sem höfundarnir fullyrða að
hafi forspárgildi hvað varðar
ár angur í starfi. Þessar tvær
persónu gerðir eru nefndar
„promotion-focus“ og „preven-
tion-focus“ sem ég kýs að kalla
sóknar menn og varnarmenn á
íslensku.
Halvorsen og Higgins benda
á að fjölmörg mælitæki hafi
verið þróuð í áranna rás til að
greina mismunandi persónu
gerðir, s.s. MyersBriggs
persónu gerðamatið, sem margir
kannast við. Flest þessi mæli tæki
eiga það sameiginlegt að geta
einungis merkt ákveðin persónu
einkenni sem hafa þó ekki
forspárgildi varðandi árangur.
Hvaða þættir það eru sem
virka hvetjandi á okkur hefur
áhrif á hvernig við nálgumst
við fangsefni okkar og verkefni.
Það skiptir því máli með hvaða
hætti stjórnendur setja fram
markmið og hvaða aðferðum er
beitt til starfshvatningar.
sóknarmenn
Sóknarmenn sjá markmið sem
vegvísi að framþróun eða aukn
um ávinningi sem þeim hlotnast
þegar markmiðum er náð. Þeir
eru kappsamir, jákvæðir og
tefla til sigurs. Sóknarmenn eru
fúsir til að taka áhættu, eru fljótir
að taka ákvarðanir, setja markið
hátt og eru hugmyndaríkir. Því
miður eru fylgifiskar þessara
þátta aukin hætta á mistökum,
ákvarðanir eru oft ekki nægjan
lega ígrundaðar og sjaldnast
er til varaáætlun um hvernig
bregðast eigi við ef eitthvað
fer úrskeiðis. Þessar fórnir eru
sóknarmenn tilbúnir að færa,
því þeir vita ekkert verra en að
sjá tækifæri fara forgörðum.
Varnarmenn
Varnarmenn líta á markmið
sem ábyrgð og þeir leggja
áherslu á öryggið. Þeir hafa
áhyggj ur af því hvað gæti farið
úr skeiðis ef þeir leggja sig ekki
nægjanlega mikið fram eða
gæta ekki að sér. Þeir eru mjög
varkárir og leggja áherslu á að
gæta þess sem þeir hafa, tapa
engu og viðhalda sömu stöðu.
Varnarmenn forðast áhættu, eru
nákvæmir og vandvirkir og taka
vel ígrundaðar ákvarðanir. Til
að ná árangri taka þeir sér tíma,
vanda sig og fara sér að engu
óðslega. Varnarmenn eru ekki
sérlega hugmyndaríkir en þeir
hafa góða greiningarhæfni og
eru lausnamiðaðir.
Flest höfum við einhverja
blöndu af báðum þessum eigin
leikum þótt annar sé að sögn
alltaf ríkjandi. Meirihluti fólks
er sagður hafa ríkjandi sóknar
eiginleika. Þessi breytileiki hefur
áhrif á hvað nær athygli okkar,
hefur áhrif á gildismatið og
tilfinningarnar og hvernig okkur
líður þegar okkur gengur vel
eða illa. Þetta hefur líka áhrif á
styrkleika okkar og veikleika,
bæði í starfi og einkalífi. Þetta
er jafnframt helsta skýringin á
því hvers vegna okkur finnst
stundum forgangsröðun og
ákvarðanir samstarfsfólks okkar
undarlegar. Afleiðingin er sú
að oftar en ekki eru starfs
kraftar ákveðinna starfsmanna
og stjórnenda vannýttir og
óþarflega mikill tími og orka fer í
innan hússátök og málamiðlanir.
Að stilla saman ólíkar
áherslur
Mestu máli skiptir að finna leiðir
til að nýta kosti beggja eiginleik
anna þannig að þeir vegi hvor
annan upp og ókostirnir lúti í
lægra haldi. Arðsemin af því er
bæði aukinn rekstrarárangur
og aukin starfsánægja. Hvort
tveggja er eftirsóknarvert.
Það skiptir miklu máli að huga
Sigrún Þorleifsdóttir
stjórnunarráðgjafi hjá attentus –
mannauði og ráðgjöf ehf.
stjórnun
Það er líklegra að
finna hátt hlutfall
sóknarmanna í sölu -
deildum, markaðs -
starfi og vöruþró-
un og hátt hlutfall
varnar manna í fjár-
hags-, tækni- og
fram leiðsludeildum.