Frjáls verslun - 01.10.2013, Blaðsíða 58
58 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013
græjur
HP kynnti á dög-un um nýja Elite-Book-far tölvu-línu þar sem
aðal áhersla er lögð á að vél-
arn ar séu fallega hannaðar,
þunn ar (Ultrabook) en upp -
fylli samtímis allar kröfur í
nútíma fyrirtækjaumhverfi. Í
hönnuninni er passað upp á að
þrátt fyrir að vélarnar séu mjög
þunnar, 2,1 cm, og aðeins 1,3 kg
að þyngd séu þær með öllum
þeim tengj um sem nauðsynleg
eru, s.s. RJ-45-nettengi, VGA-
skjá tengi, Displayport og
tengi fyrir alvöru tengikví.
„Við leggjum áherslu á að eiga
vélarnar á lager fullbúnar, til
að mynda eru þær allar með
þriggja ára HP-ábyrgð bæði
á rafhlöðu og vélbúnaði,“
segir Brynjar Björgvinsson,
vörustjóri notendabúnaðar hjá
Opnum kerfum. „Hefðbundin
rafhlaða vélanna endist í allt
að fimmtán klukku stundir og
hægt er að fá auka rafhlöðu sem
eykur end inguna í allt að 33
klukku stundir, sem aðgreinir
EliteBook-vél arnar frá vélum
annarra fram leiðenda. Eitt af
aðals merkj um HP er sú hug-
mynd að hanna tölvur á
þann veg að
tæknimenn hafi
auðvelt aðgengi; með
einu handtaki kemstu að
disknum og öðru því sem hægt
er að uppfæra. Til dæmis er
hægt að taka rafhlöðuna úr og
stækka minnið í allt að sextán
gígabæt og gildir þá einu hvort
vélarnar eru tólf, fjórtán eða
fimmtán tommur að stærð.
Snertiskjásvæðing
HP leggur mikla áherslu á að
upplifun notenda á Windows
8 sé sem best með því að bjóða
snertiskjá sem kost í flestum
vörulínum sínum og þá ekki
síst allri Elite-fyrirtækjalínunni.
Auknar vinsældir tölva með
snertiskjá eru rökrétt fram hald
þeirrar þróunar sem hefur
orðið á síma- og spjald tölvu -
markaðinum á síðustu árum.
Spjaldtölva er ekki bara
spjaldtölva
Vinsældir ElitePad-spjald-
tölv anna byggjast ekki síst á
því að við þær er hægt að fá
fullkomna tengikví sem tengja
má við m.a. aukaskjá, mús
og lyklaborð. Auk þess eru
fjölmargir aukahlutir fáanlegir
sem aðgreina HP ElitePad-
spjald tölvurnar frá öðrum
teg undum. Meðal þessara
nýj unga er svokallað slíður
með strikamerkjaskanna og
korta lesara. Þannig er hægt að
færa heilu afgreiðslukerfin inn í
spjald tölvuna.“
Öflugar vélar með snertiskjá
Opin kerfi bjóða mikið úrval af fartölvum til ýmissa nota, bæði fyrir heimili og fyrirtæki.
HP Elite-fyrirtækjalínan er með þeim öflugustu á markaðnum.
TexTi: Hrund HauksdóTTir Myndir: Geir ólafsson oG úr safni
Brynjar Björgvinsson, vörustjóri notendabúnaðar, sýnir notkun á HPfartölvu með snertiskjá.
HP eliteBook 840fartölva með
snertiskjá.
„HP er með algjör-
lega nýja sýn á
notendabúnað,
samanber ElitePad,
EliteBook og Elite-
One, sem allar eru
með snertiskjá, og
Windows 8 Professi-
onal, sem er hent-
ugt í fyrirtækja-
umhverfi.“
Það er ýmislegt sem breytist með tímanum en KEA hangikjötið hefur verið
ómissandi á jólaborðum Íslendinga í fjöldamörg ár. Það er taðreykt og verkað
samkvæmt aldagömlum hefðum sem tryggja framúrskarandi bragð og gæði.
Bragðið sem býr til jólin … ár eftir ár.
KEA HANGIKJÖT