Frjáls verslun - 01.10.2013, Blaðsíða 18
18 FRJÁLS VERSLUN 10. 2013
dagbókin
Sérfræðingar þér við hlið
Opin kerfi hf. / Höfðabakka 9 / 110 Reykjavík / S. 570 1000 / www.ok.is
Framúrskarandi hönnun,
notendavæn og snjöll smáatriði
HP hefur tekist að skapa einstaka fartölvulínu
fyrir fyrirtækjaumhver þar sem kröfuhörðustu
notendur verða ekki fyrir vonbrigðum.
Auðvelt er að
tengja EliteBook fartölvurnar við
búnaðinn á skrifstofunni með UltraSlim tengikví.
Hraðvirkari, nettari og
léttari en áður
Fáðu ráðgjöf sérfræðinga Opinna kerfa við val á
lausnum sem henta þínum þörfum og umhver.
28% léttari og
40% þynnri
UltraSlim
tengikví fyrir
skrifstofuna*
15 klst. ending
rafhlöðu og allt
að 33 klst. með
stærri rafhlöðu*
Nýr valkostur,
snertiskjár*
* aukabúnaður
Ný HP EliteBook 800 fartölvulína
Make it matter
Margir héldu að þeir fengju ávísun senda heim til sín tíu dögum
eftir kosningar. Leiðrétt ingin
mikla á verðtryggðum íbúðalá
num leit hins vegar dags ins
ljós í Hörpu laugardag inn 30.
nóvember þegar Sig mundur
Davíð Gunnlaugsson for sætis
ráðherra og Bjarni Bene dikts
son fjármálaráðherra kynntu
úrlausnir um að verð tryggð
íbúðalán lækki um 150 millj
arða á næstu fjórum árum.
Mjög skiptar skoðanir eru um
þessa leiðréttingu sem var eitt
helsta kosningamál Framsóknar
flokksins í síðustu kosningum.
Úrræðin eru býsna almenn en
munu væntanlega ekki duga til
að bjarga skuldsettustu heimilun
um. Íbúðalánasjóður, sem er á
ábyrgð ríkissjóðs, mun einnig
styrkjast verulega við leiðrétting
una. Aðgerðirnar eru tvíþættar
og áætlar sérfræðingahópur
ríkisstjórnarinnar að þær nái til
80% heimila, eða um 100.000
heimila af alls um 120.000 á
landinu. Sækja þarf um leiðrétt
ingu lánanna.
Í stórum dráttum verða verð
tryggð íbúðalán færð niður um
80 milljarða til að vega upp
verðbólguskotið 20072010. Féð
er að mestu sótt til skilanefnda
gömlu bankanna, kröfuhafanna,
með því að hækka bankaskatt
inn og þarf að ná í yfir 20
milljarða á ári hjá þeim í þessi
fjögur ár til að fjármagna her leg
heitin. Niðurfærslur íbúðalána í
110%leiðinni koma til frádráttar
beinni niðurfærslu verðtryggðra
lána, sem og greiðslur vaxta
bóta síðustu ár. Jafnframt eiga
greiðslur úr séreignarsjóðum
að skila 70 milljörðum á þremur
árum en upphæðin ræðst af
þátttöku lántakanda. Hámarks
fjárhæð niðurfærslu lána á heim ili
nemur fjórum milljónum króna,
en getur farið í 5,5 milljónir á
heimili að hámarki með því að
taka út skattlaust 500 þúsund
krónur af séreignasparnaði
á ári í þrjú ár til niðurgreiðslu
höfuðstóls íbúðalánanna.
„Í stórum dráttum
verða verð tryggð
íbúðalán færð niður
um 80 milljarða til að
vega upp verðbólgu-
skotið 2007-2010.“
Tónninn gefinn í Hörpunni
Leiðréttingin mikla: