Són - 01.01.2009, Page 144

Són - 01.01.2009, Page 144
HELGI SKÚLI KJARTANSSON144 líklegt að stakt lýsingarorð eigi við fjarlægt nafnorð eins og nálægt og hafa útgefendur vísunnar tekið þetta upp með ólíkum hætti. Athyglisverð er skýring Magnúsar Finnbogasonar, sem mjög lagði sig eftir lestri dróttkvæða: „Orðslægur karl (djöfullinn) er staddur hjá Sturlu.“15 Þetta hygg ég sé hárrétt lesið enda rétt lýsing – hvort sem átt er við kölska sjálfan eða Óðin sem fulltrúa hans. Og athugum að slægur gat ekki aðeins merkt „lúmskur“ heldur „skæður, skaðvænn“, sbr. slægan hest. Skáldin höguðu máli sínu ógjarna svo að áheyranda yrði merking vísunnar ljós jafnóðum. Íþrótt þeirra snerist um að setja hlustandann í óvissu, jafnvel um margt í senn, en gefa honum síðan vísbendingar um ráðningar, helst nær lokum vísufjórðungs eða -helmings. Fyrsta línan, „Karl er staddur hjá Sturlu,“ á væntanlega alls ekki að vera skiljanleg ein sér, enda mætti það fyrr vera kunnugleikinn að sjá strax kölska (eða Óðin) í svo hversdaglegu orði. Nei, hér er gáta sem skáldið opnar, hlustandinn bíður eftir lausn, eða vísbendingu öllu heldur, og fær hana undir lokin: þetta er ekki hvaða „karl“ sem er heldur „karl orðslægur“. Jafnvel þetta er furðu knöpp vísbending fyrir lausavísu sem vænt- anlega hefur átt að vera nokkurn veginn skiljanleg við fyrstu tilraun. Kenningar voru að vísu oft langsóttari en þetta, en þær féllu líka í kerfi sem fólk átti að kunna, vita t.d. hvernig vatn (og alls konar orð og orðasambönd um vatn, vötn eða sjó) var notað til að tákna gull og þar fram eftir götunum. Af Óðinskenningum var líka til fjölslungið kerfi en ekki fellur „orðslægur karl“ inn í það. Ef herflokkarnir í Deildartungu 1180 voru hins vegar vanir heitinu rægikarl um kölska (og þá hugsanlega um Óðin líka þegar hann kom fram í þess háttar hlutverki), þá verður skiljanlegt hvernig þeim var ætlað að kveikja á perunni þegar opnunin „karl …“ lokaðist loksins sem „karl … orðslægur“. Hvaða karl átti þetta eiginlega að vera? Jahá, rægikarlinn. Vísa Jóns skálds er þannig vísbending – engin fullnaðarsönnun en viss röksemd þó – um að orðið rægikarl í merkingunni „kölski“ sé u.þ.b. 500 árum eldra en fyrsta skjalfesta dæmið. Við getum líkt þessu dæmi í Sturlungu við steingerving sem er raunar ekki af risaeðlu heldur af fótspori hennar. Þá ætti hún samt að hafa verið til. 15 „Vísnaskýringar“, Sturlunga saga I, útg. Jón Jóhannesson, Magnús Finnbogason og Kristján Eldjárn (Reykjavík, Sturlunguútgáfan, 1946), bls. 583.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185

x

Són

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Són
https://timarit.is/publication/1139

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.