Gerðir kirkjuþings - 1999, Qupperneq 12

Gerðir kirkjuþings - 1999, Qupperneq 12
munu allir prestar íslands og fulltrúar allra sókna í landinu taka þjóðina til altaris þannig að við getum saman brotið brauðið og bergt af lífsins lind og vonar. Ég vil leggja kirkjuþingi og okkur öllum kristnihátíð á hjarta þannig að við berum hana á bænarörmum okkar og leggjum okkur fram um að vanda sem mest til og vimia að því um byggðir landsins að mynda eftirvænting til þeirra tímamóta, hvetja og laða og uppörva þjóðina til að fjölmenna til Þingvalla og treysta sín heit, hugi og hendur til hins góða verksins, til samleiðar með Kristi til móts við nýja öld. Á vísitasíu um Austfirði í sumar hlaut ég dýrmæta innsýn í líf og aðstæður kirkjunnar í þeim fagra landshluta. Ég þakka þeim sem tóku á móti okkur hjónum og samferðarfólki fyrir undirbúning og umhyggju alla. Ég fann ofurvel þann kvíða og áhyggjur sem fólk ber í barmi andspænis því afli sem ógnar framtíð þess og byggðarlaganna, en jafnframt heillaðist ég af manndómi og dugnaði heimamanna, ungra sem eldri, af umhyggju fólksins fýrir byggðarlagi sínu og einstakri alúð og trúmennsku í þjónustu við kirkju sína og samfélag, sóknamefnd sem af litlum efnum leggur fram fé til Hjálparstarfs kirkjunnar til að grafa brunna í Afríku, til að létta neyð og minna sig og okkur öll á að við erum öll í þakkarskuld við hjartagott og örlátt fólk. Sóknamefndir viðhalda af veikum mætti ómetanlegum þjóðar- gersemum, sem kirkjuhúsin gömlu em. Þar stendur alþjóð í mikilli þakkarskuld við hina fáu og trúu. Þó verðum við að muna að kirkjuhúsin gömlu og ffiðuðu eru ekki minjasöfn um eitthvað sem einu sinni var og aldrei kemur til baka, það má kirkjan aldrei verða, heldur lifandi samfélag lifandi fólks, biðjandi, boðandi, þjónandi. Hljómfegurð klukknanna öldnu þegar kallað var tíða til og það var svo auðfundið að það var ekki aðeins fumlaus hönd hringjarans heldur hlýtt hjarta sem lagði sig fram og gaf tóninn skæra. Lítið samfélag kom saman, var kallað saman, sem er órofa hluti samhengis sem er ólýsanlega stórt. Hljómur orgelsins, rödd meðhjálparans, hendur fólksins er signdi sig, ungar hendur bamanna, lúnar hendur fullorðinna, söngur kórsins, barnsaugun tæru, einbeitni hinna fullorðnu, rúnum ristar ásjónur hinna öldnu með orð guðs og borð, allt myndar þetta hlýjan vef í minningunni. Fólkið sem leggur svo mikið á sig til að halda uppi kirkjusöng og helgiþjónustu og konumar sem hafa með höndum reglubundið barnastarf í afskekktu byggðarlagi, efna jafnvel til helgistundar á aðfangadag fýrir byggðina svo ungir sem eldri fari ekki á mis við hughrif og helgi hátíðarinnar. Og svona gæti ég haldið áfram. Þetta fólk er salt jarðar og ljós í dimmum heimi, vonartákn og ffamtíðar, byggð og landi og kirkju. Guð blessi það og vemdi bömin sín öll. Það var ógleymanlegt að koma að Þórarinsstöðum í Seyðisfirði og skoða fomleifaupp- gröftinn þar. Þar hafa fundist leifar kirkjugarðs og kirkju ffá mótum heiðni og kristni á Is- landi. Engar heimildir voru til um kirkju á þessum stað nema þjóðsagan um Dvergastein. Sagan segir að til foma hafi kirkja staðið handan íjarðarins en verið flutt norður yfir, þar sem síðar stóð prestssetrið í firðinum um aldir. Dvergamir í steininum söknuðu kirkjunnar, klukknahljómsins og hins helga söngs og fleyttu því steininum yfir fjörðinn að nýju kirkjunni þangað sem hann enn stendur, að Dvergasteini. Þessi saga segir að minning kirkjunnar á Þórarinsstöðum hefur lifað í munnmælum. En hún segir okkur líka að hollvættir landsins unna kirkjunni, þ.e. hin helga iðkun í helgi- dóminum signir landið, lýsir ffiði yfir lýð og land, helgar og blessar. Látum þeirri iðkun ekki linna. Friður guðs sé með oss öllum. Ég bið herra forseta að taka nú við stjórn kirkjuþings. Guðs góði andi leiði þig og þing- störf öll. 8
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.