Gerðir kirkjuþings - 1999, Síða 19
þjóðfélaginu. Það hlýtur þá að verða okkur öðrum hvatning til að leggja okkur fram við það
að öll orð okkar og athafnir sem frá kirkjuþingi berast, megi hafa slík áhrif.
Við verðum líka alltaf að hafa í huga, að jafnframt því sem kirkjuþing sjálft er
vettvangur orða og athafna í þágu íslensku kirkjunnar, þá er því ætlað það mikilvæga
hlutverk að skapa sem best starfsskilyrði fyrir alla, einstaklinga og söfnuði, til að vinna að
málefnum kristinnar trúar. Við væntum þess að á þessu þingi höfum við gengið þá götu til
góðs.
Með því hugarfari þurfum við að hjálpast að við að vinna sem best að undirbúningi
næsta kirkjuþings, eins og mikill áhugi hefúr komið fram um á þessu þingi. Það er afar
brýnt að okkur takist að nýta sem best hin gullnu tækifæri sem við vonumst til að komandi
ár muni gefa okkur. Árangur byggist á því hvað okkur muni takast vel með guðs hjálp að
sameina kraftana.
Við lok 31. kirkjuþings flyt ég kirkjuþingi biskupi og kirkjuráði kærar þakkir fyrir
ágætt samstarf við undirbúning þess og störfin á þinginu. Enn fremur þakka ég
vígslubiskupum, fulltrúa Guðfræðideildar, dóms- og kirkjumálaráðherra og fulltrúa hennar
samstarfið. Ég þakka varaforsetum og skrifurum aðstoð þeirra og þingfulltrúum öllum
ágæta samvinnu og umburðarlyndi og ítreka þakkir mínar til starfsfólks þingsins.
Að lokum færi ég Háteigssöfnuði þakkir fyrir ágæta aðstöðu sem hann hefur veitt
kirkjuþingi hér í safnaðarheimilinu og veitingar þær sem við erum nú nýbúin að þiggja.
Lokaorð biskups Islands, Karls Sigurbjörnssonar.
Forseti, kirkjuþing. Ég þakka forseta hlý og góð orð og trausta og örugga stjóm og
leiðsögn á kirkjuþingi og þakka samfylgd og samveru og samstarf ykkar allra hér á þessum
umliðnu þingdögum. Ég þakka alla góða umræðu og vönduð vinnubrögð og víðsýni og
góðan vilja og alla jákvæða málafýlgju á tímamótaþingi.
Nú er komið að lokum, þinglausnum og heimferð, og við höldum hvert til okkar
heima, til verkefna og skyldustarfa sem bíða okkar þar á þeim vettvangi sem við erum
kölluð til að sinna. Starfsfólk þingsins situr hér eftir yfir pappírunum og dótinu og
tækjunum og þarf að láta hendur standa fram úr ermum til þess að ganga frá öllu. Við
kveðjum þau með miklu þakklæti fyrir allt það sem þau hafa innt af hendi, þökkum það
ómetanlega verk sem það hefur unnið hér. Arangur okkar verka er svo mjög undir atorku
þess og umsjá kominn.
Og nú höldum við heim á akurreinina okkar heima og það er þar sem þetta á að virka
allt saman, þetta sem hér hefur verið rætt. Og þar á það að virka og þar á það að bera ávöxt,
það sem við höfum unnið að þessa undanfömu daga. Við erum að vinna að því að smíða og
slípa og bæta verkfærin og leggja brautir og smíða brýr í starfi kirkju Krists á íslandi,
hinnar þúsund ára gömlu þjóðkirkju á íslandi, biðjandi, boðandi, þjónandi kirkju.
Þegar þú gengur til sóknarkirkjunnar þinnar á sunnudaginn kemur hugsa þá til þess
sem hún stendur fyrir, til þess sem þar er haft um hönd og iðkað. Að starfi okkar hér ber að
hlúa og greiða því veg svo að það megni að bera ávöxt í samfélaginu, í umhverfmu. Þessi
þúsund ára þjóðkirkja hefur enn við þessi árþúsundamót sama hlutverk og við þau fyrri, að
gera allar þjóðir að lærisveinum, að gera hverja nýja kynslóð að lærisveinum, að byggja
upp samfélag trúar í söfnuði sem vill veita skilyrði til vaxtar og þroska. Og starf sóknanna,
smárra og stórra, það miðar að því að væða og virkja og uppörva fólk til þess að lifa trú
sína og vonina og lifa kærleikann, umhyggjuna og miskunnsemina, að það séu ekki orð
heldur birtist í verkum, trúaruppeldi sóknarkirkjunnar og trúaruppeldi heimilanna og
vitnisburður einstaklingsins hvar sem hann stendur á vettvangi dagsins og guðsþjónustu
helgidagsins. Þetta eru homsteinar kirkjubyggingar dagsins og framtíðarinnar. Það er eins
15