Gerðir kirkjuþings - 1999, Page 24

Gerðir kirkjuþings - 1999, Page 24
1. mál. 31. KIRKJUÞING. 1999. Þski. 1. barst það seint að ekki þóttu tök á að semja fullnægjandi reglur á grundvelli hennar, en mjög mikilvægt er að vandað sé til verka þar sem endranær. Reynsla af þegar samþykktum starfsreglum. Kirkjuþing 1998 setti nýjar starfsreglur um fjölmörg atriði sem áður voru bundin í lögum frá Alþingi. Kirkjuráð telur ljóst eftir þá reynslu sem fengist hefur af starfsreglum, settum af kirkjuþingi 1998, á grundvelli laga um stöðu, stjóm og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997, að ýmissa, smávægilegra breytinga er þörf, sem einkum felast í lagfæringum og aðlögunum. Kirkjuþing 1998 var um margt mjög óvenjulegt þing. Bæði var um að ræða þing í alveg nýju umhverfi og með nýrri yfirstjóm svo og hitt, að margir kirkjuþingsmenn vom nýir á þessum vettvangi. Fjalla þurfti um drög að starfsreglum um nánast grundvallaratriði kirkjuskipunarinnar á mjög skömmum tíma. Þrátt fýrir þetta er það mat kirkjuráðs að almennt hafi tekist vel til með ffamkvæmd starfsreglna og það stjómkerfi og fýrirkomulag sem þær mæla fyrir um yfirleitt reynst vel þann tíma sem þær hafa gilt. Rétt er þó að hafa í huga að flestir bálkamir hafa einungis gilt frá síðustu áramótum þannig að hæpið er að fullyrða að nægileg reynsla sé komin á þá suma hveija a.m.k. Þá hefur ekki reynt á ýmis ákvæði bálkanna eðli málsins samkvæmt, t.d. um kjör til kirkjuþings. Kirkjuráð telur að fara beri varlega í sakimar og láta reyna á hvemig þessi lög og reglur gagnast og móta hentugt vinnulag innan þess ramma sem okkur er settur. Um val á prestum. Á kirkjuþingi 1998 vom samþykktar nýjar reglur um val á prestum þ.e. 13. - 33. gr. og 38. gr. starfsreglna um presta nr. 735/1998, sbr. og leiðbeinandi reglur biskups frá 9. mars 1999, sem settar eru á grundvelli þeirra reglna. í stað eldra fýrirkomulags við val á sóknarpresti þar sem sóknamefndir (ásamt varamönnum) í hlutaðeigandi prestakalli vom kjörmenn í leynilegri atkvæðagreiðslu og meirihluti réð úrslitum, kom nýtt kerfi. Kerfið felur í sér gmndvallarbreytingar frá fýrri skipan og verður að teljast merkileg tilraun til samþættingar ólíkra sjónarmiða innan kirkjunnar - sjónarmiða sem erfitt er að samrýma til fulls. Um er að ræða stéttarleg sjónarmið annars vegar og rétt sóknarfólks til að hafa áhrif á val hins vegar. Kirkjuráð hefur fjallað um valnefndir og reynsluna af þeim á þeim skamma tíma sem þær hafa verið við lýði og ýmis álitamál sem hafa komið upp um framkvæmd. Tilefni þess var aðallega erindi sem barst kirkjuráði frá einum umsækjenda þar sem óskað var eftir áliti á veitingu í embætti sóknarprests. Spurt var m.a. um það hvort starfsreglur um val á sóknarpresti hafi í raun staðist þær væntingar, sem bundnar voru við þær. Niðurstaða kirkjuráðs var að það væri ekki á starfssviði þess að fjalla um mál er varða skipun í einstök prestsembætti. Það væru aðrir farvegir til að taka á kvörtunum vegna málsmeðferðar valnefnda. Hins vegar gætu einstök mál sem kirkjuráð væri upplýst um leitt til þess að ráðið teldi rétt að bregðast við með einhverjum hætti en það færi eftir eðli hvers málefnis hver viðbrögð yrðu og hvaða úrræði kirkjuráð hefði að lögum. Lögfræðingi kirkjuráðs sem setið hefur flesta valnefhdarfundi til þessa, var falið að taka saman greinargerð um reynslu af þessu nýja fýrirkomulagi. Greinargerð þessi fýlgir skýrslu kirkjuráðs og er vísað til hennar um þetta efni. Niðurstaða kirkjuráðs var sú að ekki væri tímabært að hrófla við starfsreglunum að svo stöddu. 20
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133

x

Gerðir kirkjuþings

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Gerðir kirkjuþings
https://timarit.is/publication/1136

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.