Gerðir kirkjuþings - 1999, Síða 55
9. mál.
31. KIRKJUÞING. 1999.
Þski. 9.
TILL AG A
að starfsreglum um söngmál og tónlistarffæðslu þjóðkirkjunnar.
Flutt af biskupi f.h. kirkjuráðs.
1. gr.
Á vegum íslensku þjóðkirkjunnar skal halda uppi tónlistarfræðslu og annast um
söngmál hennar eftir því sem biskup ákveður.
2. gr.
Kirkjuráð veitir þann fjárhagslega tilstyrk sem þarf til að unnt sé að halda uppi starfi
á grundvelli 1. gr. eftir því sem ráðið ákveður nánar hverju sinni.
3. gr.
Heimilt er að afla starfsemi á grundvelli 1. gr. sértekna með þjónustugjöldum af þeim
sem þiggja þjónustuna hverju sinni, eða öðrum sambærilegum tekjum.
4. gr.
Starfsreglur þessar sem settar eru með heimild í 59. gr. laga um stöðu, stjóm og
starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 öðlast gildi 1. janúar árið 2000.
Athugasemdir við starfsreglur þessar.
í 2. mgr. 59. gr. laga um stöðu, stjóm og starfshætti þjóðkirkjunnar nr. 78/1997 er
gert ráð fyrir að settar séu starfsreglur um hið almenna starf kirkjunnar. Reglur þessar,
sem samdar em á vegum kirkjuráðs, em settar um starfsemi sem nú er á vegum
Söngmálastjóra þjóðkirkjunnar og Tónskóla þjóðkirkjunnar. Við setningu reglna þessara
er byggt á þeirri grundvallarhugsun að kirkjuþing taki þá ákvörðun að starfi þessu skuli
haldið uppi og jafhffamt er það staðfest að starfsemi af þessum toga fellur undir þann þátt
biskupsstarfa er lýtur að helgihaldi. Býr sú hugsun að baki að biskup íslands hafi
forgöngu og yfirumsjón með inntaki helgihaldsins í kirkjunni almennt og að þessi
viðfangsefhi lúti að þeim, en kirkjuráð hafi þá stöðu í stjómkerfi þjóðkirkjunnar lögum
samkvæmt, að geta veitt fé til starfans og geti sinnt því hlutverki að annast um þá ytri
umgjörð sem nauðsyn kann að reka til að lögð sé til. Þetta er þó ákvörðunaratriði
kirkjuráðs hveiju sinni. Eðlilegt er að biskup og kirkjuráð marki sameiginlega stefnu um
samstarf og ffamtíðarfýrirkomulag þessa málaflokks og em þá ýmsir möguleikar fýrir
hendi, t.d. að fela annarri menntastofnun, með sérstöku samkomulagi, umsjón
Tónskólans. Vitaskuld kann einnig að þykja rétt að sinna verkefnunum með svipuðum
eða óbreyttum hætti og verið hefur. Hér er ekki verið að taka afstöðu að öðm leyti til
margvíslegra grundvallaratriða og spuminga sem vaknað geta um starfsemi af þessi tagi
heldur er verið að fmna viðfangsefninu stað í nýju stjómkerfi kirkjunnar og skapa því
trygga umgjörð og grundvöll. Þá skal skýrt tekið fram, að reglur þessar einar sér fela ekki
í sér að verið sé að leggja niður embætti Söngmálastjóra og Tónskóla þjóðkirkjunnar.
Hins vegar staðfesta þær það stjómunarlega svigrúm sem biskup og kirkjuráð hafa, að
þessir aðilar geta skipað málum á grundvelli 1. gr. með þeim hætti sem best þykir henta
51