Gerðir kirkjuþings - 1999, Blaðsíða 84
16. mál.
31. KIRKJUÞING. 1999.
Þski. 16.
sóknamefndarmanna og einn kirkjuþingsmaður úr hópi þjónandi presta í hverju
kjördæmi og tveir til vara, en í 1. til 3. kjördæmi eru kosnir tveir kirkjuþingsmenn úr hópi
sóknamefndarmanna og tveir úr hópi þjónandi presta og tveir til vara fyrir hvem einn
kirkjuþingsmann.
Kosning fer fram með listakjöri, sem kjörgengir meðmælendur bera fram við
kjörstjóm, hjá sóknamefndarmönnum hið fæsta 10 meðmælendur og flestir 20, hjá
þjónandi prestum hið fæsta 3 meðmælendur og flestir 6 í 4. til 9. kjördæmi, en helmingi
fleiri meðmælendur í 1. til 3. kjördæmi.
Listar skulu hafa verið lagðir ffam fyrir 10. apríl það ár sem kjósa skal. Komi aðeins
einn listi ffam, fyrir viðkomandi kjör skal það auglýst og tími framlengdur fyrir þá
kosningu um 10 daga. Komi enginn annar listi fram fyrir það kjör að þeim tíma liðnum
telst sá listi rétt kjörinn. Komi enginn listi fram fyrir viðkomandi kjör leitar kjörstjóm til
prófasta í viðkomandi kjördæmi og felur þeim þegar í stað að setja fram lista og skal það
auglýst og framkvæmt með sama hætti og ef einn listi hefði komið ffam.
Fyrsta undirfyrirsögn á kaflanum kjör til kirkjuþings orðist svo:
Kosningaréttur, kjörgengi og listakjör.
4. gr. orðist svo:
Eigi síðar en 1. maí á því ári þegar kjósa skal hefur kjörstjóm tilbúna kjörseðla fyrir
hvert kjördæmi og hefur þá úthlutað hverjum lista bókstaf sem kjósandi merkir framan
við með krossi á kjörstað. Kjósandi getur breytt röð á þeim lista sem hann krossar við
með því að merkja röðina með tölustöfum og ef helmingur kjósenda breytir röð með
sama hætti, nær hún ffam. Aðrar merkingar gera kjörseðil ógildan.
Kosning fer fram í lok héraðsstefnu sem biskup í viðkomandi biskupsumdæmi boðar
til með auglýsingu á einum eða tveimur stöðum í kjördæminu í maí, það ár sem kosning
fer fram. Biskup stjómar ffamkvæmd kosningar og tryggir að þeir einir geta kosið sem á
kjörskrá em, en jafnframt er fulltrúi ffá kjörstjóm við kjörið með kjörgögn og kjörkassa,
sem er innsiglaður að kosningu lokinni og opnast ekki fyrr en við upphaf talningar. Hann
aðstoðar biskup við framkvæmd kosningar.
Kjörgögn til sóknamefndarmanna og presta skulu vera með sitt hvomm lit og
kjörkassi greinilega merktur kjördæminu eða svæði viðkomandi kjördæmis.
5. gr. orðist svo:
Kjörstjóm telur atkvæði í fyrstu viku júnímánaðar og úrskurðar um gild og ógild
atkvæði. Sá listi sem flest atkvæði fær er rétt kjörinn með aðalmönnum og varamönnum.
Hlutfall atkvæða ræður kjöri í 1. til 3. kjördæmi og ræður röð á lista kjöri aðalmanns og
tveggja varamanna.
Hljóti tveir eða fleiri listar jöfn atkvæði ræður hlutkesti kjöri.
Kjörstjóm skal birta úrslit kosninga, strax að lokinni talningu.
Kjörstjóm gefur út kjörbréf til þingmanna, aðalmanna og varamanna og skal röð
varamanna greind sérstaklega.
Samþykkt samhljóða.
79