Gerðir kirkjuþings - 1999, Síða 114
30. mál.
31. KIRKJUÞING. 1999.
Þski. 30.
Prófastur heimtir skýrslur af prestum um framkvæmdir þeirra á prestssetrum, sem
heimilaðar hafa verið, eða sem gerðar eru samkvæmt ábúðarlögum eða húsaleigulögum,
svo og samkvæmt 4. gr. reglna þessara.
Prófastur hefur eftirlit með ástandi prestssetra í samráði við byggingaeftirlitsmann
prestssetrasjóðs, eða annan sérfróðan mann, að fengnu samþykki eða eftir ákvörðun
stjómar prestssetrasjóðs.
Prófastur kannar í samráði við prest og stjóm prestssetrasjóðs hvort þörf er á
nýskráningu eða afskráningu í fasteignamati á einstökum matshlutum prestsseturs eða
hvort tilefni er til breytinga á því að öðru leyti.
Prófastur gætir að réttindum sem tilheyra prestssetrinu.
Prófastur skal að jafnaði sinna skyldum sínum samkvæmt þessu ákvæði einu sinni á
ári.
Ef sérstaklega stendur á, svo sem vegna staðhátta í prófastsdæmi, getur stjóm
prestssetrasjóðs ákveðið, að ósk prófasts, að eftirliti með tilteknu prestssetri skuli sinnt af
sjóðsstjóm. Slík ákvörðun gildir þó aldrei lengur en fimm ár í senn og fellur þá sjálfkrafa
úr gildi. Akvörðun fellur jafnffamt úr gildi, verði prófastaskipti í prófastsdæminu á
tímanum.
Um skýrslugjöf prófasta.
11. gr.
Ef stjóm prestssetrasjóðs fer þess á leit skal prestur færa sérstaka skýrslu um
prestssetur sitt. Skýrslan skal gerð fýrir eitt almanaksár í senn og skal vera prófasti tiltæk
eigi síðar en 1. mars næsta ár þar á eftir.
I eftirlitsskýrslunni skal gerð grein fýrir þeim atriðum sem nefnd em í 8. gr. Prófastur
staðreynir að rétt sé greint frá í skýrslunni, með könnun á gögnum og athugun á
prestssetri, eða með öðrum hætti, eftir því sem við á. Að því búnu áritar prófastur
skýrsluna til staðfestu að þar sé rétt greint frá. Prófastur skal skila eftirlitsskýrslum fýrir
1. júní ár hvert til stjómar prestssetrasjóðs. Heimilt er að víkja frá tímamörkum
samkvæmt þessari og 1. mgr. ef sérstaklega stendur á.
Stjóm prestssetrasjóðs veitir almennar leiðbeiningar um frágang skýrslna. Stjómin
getur ákveðið að láta prestum og prófostum í té sérstök eyðublöð til þessara nota.
Prófastur skal að jafnaði fá öll erindi vegna prestssetra í prófastsdæmi sínu, er varða
ráðstöfun þeirra, eða hluta þeirra til langframa, þ.m.t. vegna eigin prestsseturs og veita
sjóðsstjóm umsögn um þau. Prófastur aflar einnig umsagna lögbærra aðilja, fari stjóm
prestssetrasjóðs þess á leit.
Prófastur gerir árlega greinargerð um þörf nýbygginga — eða kaupa — og endurbóta
á prestssetrum í prófastsdæmi, svo og stærri viðhaldsffamkvæmdir. í greinargerð prófasts
skal koma fram hvort möguleikar séu á framlögum frá öðmm til tiltekinna verkefna, svo
sem sjóðum, stofnunum eða sóknum.
Prófastur getur, ef hann kýs svo, gert tillögur um röð ffamkvæmda í prófastsdæminu.
Prófastur getur gert tillögur með sama hætti og vígslubiskupar, samkvæmt 3. mgr. 10. gr.
Prófastur sendir, fýrir 1. nóvember ár hvert, vígslubiskupi greinargerð samkvæmt 5. mgr.
þessarar greinar og tillögur samkvæmt 6. mgr., enda hafi samkomulag tekist samkvæmt
1. mgr. 10. gr., en ella sendir hann stjóm prestssetrasjóðs nefnd gögn.
109