Gerðir kirkjuþings - 1999, Síða 115
30. mál.
31. KIRKJUÞING. 1999.
Þski. 30.
Stjórn úttekta.
12. gr.
Prófastur stýrir úttekt. Hann gætir þess að boða fulltrúa frá stjóm prestssetrasjóðs
með hæfilegum fyrirvara, til að vera viðstaddan úttekt. Stjóm prestssetrasjóðs ákveður
hvort tilefni er til að mæta við úttektina og tilkynnir prófasti, ef ekki verður mætt. Ef um
minniháttar hagsmuni þykir vera að ræða, getur stjóm prestssetrasjóðs gert grein fyrir
sjónarmiðum sínum og óskum skriflega, áður en til úttektar kemur og sent prófasti, er
leggur það fyrir úttektarmenn.
Um hlutverk vígslubiskupa.
13. gr.
Með samþykki biskups og vígslubiskupa má fela vígslubiskupum verkefni
samkvæmt ákvæði þessu.
Vígslubiskup heimtir af próföstum fyrir 1. apríl ár hvert, greinargerð um þörf
nýbygginga — eða kaupa — og endurbóta á prestssetmm í umdæmi, svo og viðhald, sem
ekki greiðist af presti. Vígslubiskup sendir tillögur prófasta til stjómar prestssetrasjóðs,
ásamt tillögum sínum og athugasemdum um röð ffamkvæmda.
Vígslubiskupar geta gert tillögur til stjómar prestssetrasjóðs um hvaðeina sem varðar
prestssetrin, umbúnað þeirra, notkun og ásýnd. Þeir geta enn ffemur gert tillögur í þessu
sambandi sem varða menningarlega sérstöðu prestsseturs, svo sem vegna sögu þess,
fomminja, náttúrufegurðar, náttúruminja og annarra slíkra þátta.
Um stjórn prestssetrasjóðs.
14. gr.
Stjóm prestssetrasjóðs fer með yfirstjóm prestssetra.
Stjómin stýrir prestssetrasjóði og ákveður ráðstöfun inneigna á fýmingarsjóðum
prestssetra, samkvæmt 2. gr. Stjómin ákveður hvemig rekstri sjóðsins er hagað. Sérstakur
framkvæmdastjóri fer með daglega stjóm sjóðsins.
Stjóm prestssetrasjóðs hefur hlutverk landsdrottins gagnvart prestum á
prestssetursjörðum samkvæmt ábúðarlögum og öðmm lögum og hlutverk leigusala
gagnvart presti í prestsbústað samkvæmt húsaleigulögum, með þeim afbrigðum sem
kunna að leiða af lögum um prestssetur og reglum þessum, svo og sérstöðu prestssetra að
öðru leyti.
Um gæslu hagsmuna og fyrirsvar.
15. gr.
Stjóm prestssetrasjóðs hefur almennt fýrirsvar vegna prestssetra út á við svo sem
gagnvart stjómvöldum og Alþingi, og í dómsmálum þeirra vegna, og gætir almennra og
sérstakra hagsmuna prestssetra í samráði við hlutaðeigandi prest, prófast og vígslubiskup,
eins og við á.
Stjóm prestssetrasjóðs hefur gætur á lagasetningu, lagabreytingum eða setningu eða
breytingu stjómvaldsfýrirmæla á sviði kirkjumála. Sjóðsstjóm skal hafa sérstakar gætur á
lögurn um prestaköll og prófastsdæmi, þar sem mælt er fýrir um lögboðin prestssetur.
Hún gætir einnig sérstaklega að fýrirætlunum um ný prestsembætti önnur en
sóknarprestsembætti, einkum utan Reykjavíkur, vegna réttar slíks prests á prestssetri
110