Peningamál - 01.02.2003, Blaðsíða 46
PENINGAMÁL 2003/1 45
hluta ætlað. Það leiðir til þess að svigrúm til sveiflu-
jöfnunar er u.þ.b. helmingi minna og má ætla að það
taki aðila einhvern tíma að ná fullum tökum á
lausafjárstýringu sinni. Þar sem tryggingaþörf er
metin út frá sveiflum hvers einstaks aðila í kerfinu er
það honum í hag að bæta lausafjárstýringu sína
þannig að sveiflurnar minnki og má ætla að þetta
fyrirkomulag hafi áhrif á hegðun aðila á krónu-
markaði og notkun daglána í Seðlabankanum.
Vaxtamunur hefur minnkað
Lækkun vaxta hérlendis hefur valdið því að vaxta-
munur á milli Íslands og annarra landa hefur
minnkað á síðustu mánuðum. Í byrjun nóvember
2002 var vaxtamunur á víxlum 3,61 prósentur en í
lok janúar 2003 var hann kominn í 3,26 prósentur. Til
samanburðar má geta þess að í byrjun júní 2002 var
vaxtamunurinn 5,52 prósentur. Seðlabanki Banda-
ríkjanna lækkaði vexti sína um 0,5 prósentur hinn
6. nóvember 2002 og 5. desember 2002 lækkuðu
evrópski seðlabankinn, danski seðlabankinn og
sænski seðlabankinn vexti sína um 0,5 prósentur.
Norski seðlabankinn lækkaði vexti sína 11. desember
2002 um 0,5 prósentur og aftur um 0,5 prósentur
hinn 22. janúar. Stýrivextir í Noregi eru 6% eftir
þessa lækkun en þess ber að geta að stýrivextir í
Noregi eru innlánsvextir seðlabankans, ekki útláns-
vextir eins og hér á landi og víðast hvar annars staðar
í heiminum.
Metár í Kauphöll Íslands
Viðskipti í Kauphöll Íslands á árinu 2002 námu
1.133 ma.kr. en árið 2001 var veltan 749 ma.kr. Velta
hlutabréfa nam 321 ma.kr. og velta skuldabréfa og
víxla 812 ma.kr. Úrvalsvísitalan hækkaði um 16,7%
á árinu 2002. Velta hlutabréfa í janúar var nærri
meðaltalsmánaðarveltu síðasta árs og gildi úrvals-
vísitölu hlutabréfa var nokkurn veginn hið sama í lok
janúar og lok árs 2002 eða 1352. Velta skuldabréfa í
janúar var rúmlega þriðjungi meiri en meðaltals
mánaðarvelta á síðasta ári. Í janúar tók Kauphöllin í
notkun nýtt eftirlitskerfi sem gerir starfsmönnum
hennar kleift að fylgjast mjög náið með viðskiptum.
J F M A M J J Á S O N D | J
1.100
1.150
1.200
1.250
1.300
1.350
1.400
31. desember 1997 = 1.000
Mynd 5
Úrvalsvísitala hlutabréfa í Kauphöll Íslands
Heimild: Kauphöll Íslands.
Daglegar tölur 3. janúar 2002 - 31. janúar 2003
Gengisþróun
Gengi krónunnar styrktist á árinu 2002. Vísitala
gengisskráningar var skráð 141,7985 í árslok 2001 en
124,8994 hinn 31. desember 2002. Vísitalan lækkaði
því um 11,92% sem jafngildir því að krónan hafi
styrkst um 13,53%.
Velta og viðskipti
Velta á gjaldeyrismarkaði var á síðasta ári samtals
834.444 m.kr. Þar af keypti Seðlabankinn Bandaríkja-
dali fyrir 4.528 m.kr. og er hlutdeild hans 0,54% af
heildarveltu. Velta ársins 2002 er nokkru minni en á
árinu 2001 eða um 383 ma.kr., en er 66 ma.kr. meiri en
á árinu 2000.
Rammagrein Yfirlit gjaldeyrismarkaðar 2002
J F M A M J J Á S O N D
124
126
128
130
132
134
136
138
140
142
31. des. 1991=100
Vísitala gengisskráningar
Heimild: Seðlabanki Íslands.
Daglegar tölur 3. janúar - 31. desember 2002