Peningamál - 01.02.2003, Síða 48

Peningamál - 01.02.2003, Síða 48
PENINGAMÁL 2003/1 47 1. Inngangur Frá síðari hluta janúar 2001 fram í miðjan október sama ár seldi Seðlabanki Íslands erlendan gjaldeyri í skiptum fyrir íslenskar krónur fyrir rúma 24 ma.kr. Með þessum aðgerðum vildi bankinn draga úr veikingu gengis krónunnar og gengissveiflum. Gengi krónunnar veiktist hins vegar um 15% á þessum tíma og ekki virðist sem bankanum hafi tekist ætlunarverk sitt, þótt ómögulegt sé að segja hvað hefði gerst hefði bankinn ekki reynt. Ofangreindar aðgerðir eru kallaðar inngrip seðla- banka á gjaldeyrismarkaði, þ.e. seðlabanki fer inn á gjaldeyrismarkað að eigin frumkvæði og kaupir eða selur innstæður í innlendri mynt í skiptum fyrir inn- stæður í erlendri mynt. Almennt er þó gerður greinar- munur á því hvort seðlabanki fer inn á gjaldeyris- markað með það fyrir augum að hafa áhrif á gengi gjaldmiðla eða hvort hann er t.d. eingöngu að koma í veg fyrir að breytingar á stærð gjaldeyrisforða bankans eða samsetningu hans hafi tímabundin áhrif á gengi innlends gjaldmiðils. Slík viðskipti seðla- banka eru ekki skilgreind sem inngrip í þessari grein (sjá t.d. Baillie, Humpage og Osterberg, 1999). Í þessari grein er fjallað um inngrip seðlabanka á gjaldeyrismarkaði og árangur þeirra. Annar kafli greinarinnar fjallar almennt um inngrip, framkvæmd þeirra og niðurstöður alþjóðlegra rannsókna á árangri þeirra. Í þriðja kafla er fjallað um mismunandi mark- mið inngripa og fjórði kafli fjallar um þá leynd sem almennt virðist ríkja um þau. Fimmti kafli fjallar um mismunandi útfærslu inngripa. Í sjötta kafla er síðan fjallað nánar um inngrip Seðlabanka Íslands, hvernig aðkoma bankans hefur breyst eftir því sem innlendur gjaldeyrismarkaður hefur þróast og umgjörð pen- ingastefnunnar breyst. Einnig er fjallað um hvernig framkvæmd inngripanna hefur verið háttað og að lokum um árangur þeirra. Í síðasta kafla eru lokaorð. Gerður Ísberg og Þórarinn G. Pétursson1 Inngrip Seðlabanka Íslands á innlendum gjaldeyrismarkaði og áhrif þeirra á gengi krónunnar Frá stofnun skipulagðs millibankamarkaðar með gjaldeyri um mitt ár 1993 hafa hlutverk og aðkoma Seðlabankans að markaðnum tekið töluverðum breytingum. Framan af var bankinn mikilvægur þátttakandi á markaðnum og átti þátt í stórum hluta viðskipta til þess að tryggja vísi að sem skilvirkastri verðmyndun á gjaldeyri. Eftir því sem markaðurinn hefur þroskast hefur bankinn hins vegar séð sér tækifæri til að draga sig út af markaðnum og hefur innkoma hans þá nánast eingöngu verið að hans frumkvæði, annað hvort beinlínis til að hafa áhrif á gengi krónunnar eða við sérstakar aðstæður sem ekki tengjast beint framgangi peninga- stefnunnar. Í þessari grein er fjallað um inngrip Seðlabanka Íslands á innlendum gjaldeyrismarkaði og árangur þeirra. Því er haldið fram að beinn árangur þeirra hafi verið fremur takmarkaður og þá yfirleitt eingöngu til skamms tíma. Þó er ekki hægt að útiloka að bankanum hafi tekist að tefja nægilega mikið fyrir veikingu krónunnar þannig að meginþungi hennar hafi komið fram þegar mesta ofþenslan var að baki. 1. Gerður er staðgengill framkvæmdastjóra peningamálasviðs Seðla- banka Íslands og Þórarinn er deildarstjóri rannsóknardeildar hag- fræðisviðs Seðlabanka Íslands og lektor við Háskólann í Reykjavík. Höfundar þakka ritnefnd Peningamála gagnlegar ábendingar. Þær skoðanir sem hér koma fram eru höfunda og þurfa ekki að endurspegla skoðanir Seðlabanka Íslands.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.