Peningamál - 01.02.2003, Síða 98

Peningamál - 01.02.2003, Síða 98
PENINGAMÁL 2003/1 97 Janúar 2002 Hinn 9. janúar var tilkynnt að Kaupþing hf. hefði undirritað viljayfirlýsingu um kaup á sænska verð- bréfafyrirtækinu Aragon Holding AB. Gert var ráð fyrir að kostgæfnisathugun lyki í janúar og að þá yrði endanlega gengið frá viðskiptunum. Hinn 11. janúar var Kaupþingi hf. veitt viðskipta- bankaleyfi. Þann 28. desember 2001 var samþykkt á hluthafafundi hjá Kaupþingi hf. að breyta samþykkt- um félagsins svo að unnt yrði að veita Kaupþingi viðskiptabankaleyfi. Meðal þess sem hluthafafund- urinn samþykkti var að bæta orðinu banki aftan við heiti félagsins. Nafn félagsins eftir breytingu er Kaupþing banki hf. og starfar það samkvæmt lögum um viðskiptabanka og sparisjóði. Hinn 20. janúar tóku gildi breytingar á starfrækslu- tíma stórgreiðslukerfis sem starfrækt er af Seðla- banka Íslands. Stórgreiðslukerfið verður starfrækt frá kl.8.45 til kl.18.00 og lágmarksupphæð greiðslu- fyrirmæla er 25 milljónir króna. Í fjáraukalögum 2001 sem samþykkt voru á Alþingi í desember fólst m.a. heimild til þess að ríkissjóður legði Seðlabanka Íslands til stofnfé að fjárhæð 9 ma.kr. á árinu 2001. Framlagið var greitt í lok ársins. Í fjárlögum 2002 sem einnig voru samþykkt í desem- ber fólst heimild til þess að greiða 4,5 ma.kr. stofn- fjárframlag til bankans á árinu 2002. Febrúar 2002 Hinn 11. febrúar var undirritaður samningur á milli Seðlabanka Íslands og Union Bank of Norway um lánsheimild að fjárhæð 200 milljónir Bandaríkjadala sem samsvaraði á þeim tíma tæplega 21 milljarði króna. Samningurinn er til fimm ára og felur í sér hagstæð kjör fyrir Seðlabankann. Samningurinn við Union Bank of Norway kemur til viðbótar sambæri- legum samningum um lánsheimildir við nokkrar aðrar fjármálastofnanir. Hinn 15. febrúar staðfesti alþjóðlega matsfyrirtækið Fitch lánshæfiseinkunnina AA- fyrir ríkissjóð Íslands vegna lána í erlendri mynt. Fyrirtækið staðfesti jafnframt lánshæfiseinkunnir fyrir skuld- bindingar í íslenskum krónum en þær eru AAA fyrir langtímaskuldbindingar og F1+ fyrir skammtímalán. Horfur um lánshæfiseinkunnir vegna langtímalána voru taldar neikvæðar en voru áður stöðugar. Mars 2002 Hinn 5. mars tilkynnti Seðlabanki Íslands um fyrir- hugaðar breytingar á hæfi verðbréfa í endurhverfum viðskiptum. (Sjá rammagrein bls. 31 í Peningamál- um 2002/2.) Hinn 8. mars setti bankastjórn Seðlabanka Íslands formlegar reglur um millibankamarkað með gjald- eyrisskiptasamninga. Reglurnar tóku gildi 15. mars 2002. Hinn 13. mars var tilkynnt að ákveðið hafi verið að binda endi á það ferli sem staðið hafði um skeið og miðaði að því að selja umtalsverðan hlut í Landssíma Íslands hf. til kjölfestufjárfestis. Sölu hlutabréfa ríkisins verður haldið áfram um leið og aðstæður á fjármálamarkaði leyfa. Hinn 26. mars tilkynnti bankastjórn Seðlabanka Íslands um lækkun á vöxtum bankans í endurhverf- um verðbréfaviðskiptum og á innstæðum lána- stofnana í Seðlabankanum um 0,5 prósentur frá 1. apríl. Apríl 2002 Hinn 1. apríl féllu í gjalddaga spariskírteini ríkis- sjóðs, RS02-0401, að fjárhæð 10 ma.kr. Í kjölfar gjalddagans jókst laust fé í umferð og lækkuðu vext- ir á millibankamarkaði umtalsvert. Hinn 1. var framlengt um þrjá mánuði, samkomulag um greiðslu þóknunar til viðskiptavaka á gjaldeyris- markaði. Annáll fjármálamarkaða Janúar 2002 – janúar 2003
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.