Peningamál - 01.02.2003, Síða 100
PENINGAMÁL 2003/1 99
Ágúst 2002
Hinn 30. ágúst tilkynnti Seðlabanki Íslands um 0,3
prósenta vaxtalækkun. Vaxtalækkunin tók gildi þann
1. september. Eftir lækkunina voru stýrivextir bank-
ans 7,6%.
September 2002
Hinn 10. september var tilkynnt að ráðherranefnd um
einkavæðingu hefði ákveðið að ganga til viðræðna
við Samson eignarhaldsfélag ehf. um kaup á umtals-
verðum hlut í Landsbanka Íslands hf. Jafnframt var
ákveðið að hefja frekari undirbúning fyrir sölu á
umtalsverðum hlut í Búnaðarbanka Íslands hf.
Hinn 18. september tilkynnti Seðlabanki Íslands um
0,5 prósenta vaxtalækkun. Vaxtalækkunin tók gildi
þann 21. september. Eftir lækkunina voru stýrivextir
bankans 7,1%.
Hinn 30. september keypti Sparisjóður Reykjavíkur
og nágrennis alla hluti Kaupþings banka hf. í Frjálsa
fjárfestingarbankanum hf.
Október 2002
Hinn 15. október tilkynnti Seðlabanki Íslands um 0,3
prósenta vaxtalækkun. Vaxtalækkunin tók gildi þann
21 október. Eftir lækkunina voru stýrivextir bankans
6,8%.
Hinn 21. október var tilkynnt að framkvæmdanefnd
um einkavæðingu og Samson eignarhaldsfélag ehf.
hefðu náð samkomulagi um kaup Samson ehf. á
45,8% hlutabréfa í Landsbanka Íslands hf. Eftir þessi
viðskipti verður eignarhlutur ríkisins í Landsbanka
Íslands hf. um 2,5%. Í kjölfar samkomulagsins var
ákveðið að halda áfram söluferli vegna hlutabréfa
ríkisins í Búnaðarbanka Íslands hf. Valdir voru tveir
hópar fjárfesta til frekari viðræðna.
Hinn 22. október hækkaði matsfyrirtækið Moody´s
Investors Service lánshæfismat skuldabréfa og
bankainnstæðna í erlendri mynt vegna skuldbindinga
Íslands í Aaa sem er hæsta einkunn sem gefin er.
Ísland hafði áður einkunnina Aa3.
Nóvember 2002
Hinn 5. nóvember var tilkynnt að ráðherranefnd um
einkavæðingu hefði ákveðið að gengið yrði til við-
ræðna við hóp fjárfesta sem samanstóð af Eignar-
haldsfélaginu Andvöku, Eignarhaldsfélaginu Sam-
vinnutryggingum, Vátryggingafélagi Íslands hf.,
Kaupfélagi Skagfirðinga svf., Keri hf. og Samvinnu-
lífeyrissjóðnum auk einnar eða fleiri erlendra fjár-
málastofnana um kaup á umtalsverðum hlut í Bún-
aðarbanka Íslands hf. Ákvörðun þessi var byggð á
forsendum framkvæmdanefndar um einkavæðingu
og mati breska bankans HSBC á þeim gögnum sem
borist höfðu frá þeim tveimur aðilum sem nefndin
hafði átt í viðræðum við.
Hinn 6. nóvember tilkynnti Seðlabanki Íslands um
0,5 prósentna vaxtalækkun sem tók gildi 11. nóvem-
ber. Eftir lækkunina voru stýrivextir bankans 6,3%.
Hinn 12. nóvember hóf Hagstofa Íslands að birta
tvær kjarnavísitölur til að mæla undirliggjandi verð-
bólguþróun. Í yfirlýsingu ríkisstjórnar og Seðlabanka
Íslands frá 27. mars 2001 um verðbólgumarkmið og
breytta gengisstefnu var gert ráð fyrir því að þess
yrði farið á leit við Hagstofu Íslands að hún reiknaði
eina eða fleiri vísitölur sem nota mætti til að meta
undirliggjandi verðlagsþróun eins og nánar yrði
samið um á milli Hagstofunnar og Seðlabankans.
Kjarnavísitölur 1 og 2 eru afrakstur þeirrar vinnu.
Báðar eru byggðar á sama grunni og vísitala neyslu-
verðs en hin fyrri undanskilur verð grænmetis,
ávaxta, búvöru og bensíns og hin síðari til viðbótar
verð opinberrar þjónustu.
Hinn 18. nóvember tilkynnti matsfyrirtækið Standard
& Poor’s að það hefði breytt horfum um lánshæfi
Íslands úr neikvæðum í stöðugar. Um leið staðfesti
fyrirtækið lánshæfiseinkunnir Íslands, bæði einkunn-
ina AA+/A-1+ fyrir lán í íslenskum krónum og
A+/A-1+ fyrir lán í erlendri mynt. Helstu ástæður
fyrir breyttu mati voru bætt ytri staða íslenska
þjóðarbúsins, árangur sem náðst hafði í sölu ríkis-
bankanna og áframhaldandi góð afkoma bankanna að
afloknu skeiði sem einkenndist af útlánaþenslu.
Desember 2002
Hinn 10. desember var tilkynnt að sænska fjármála-
eftirlitið hefði veitt samþykki sitt fyrir yfirtöku
Kaupþings banka hf. á JP Nordiska bankanum í
Stokkhólmi. Þar með var yfirtöku Kaupþings banka á
JP Nordiska lokið.
Hinn 12. desember tilkynnti Seðlabanki Íslands um
0,5 prósentna vaxtalækkun sem tók gildi 17. og 21.
desember. Eftir lækkunina voru stýrivextir bankans
5,8%.