Peningamál - 04.11.2015, Síða 27

Peningamál - 04.11.2015, Síða 27
P E N I N G A M Á L 2 0 1 5 • 4 27 PENINGASTEFNAN OG INNLENDIR FJÁRMÁLAMARKAÐIR 5. Mun færri hafa nýtt sér séreignarsparnaðarleiðina en gert var ráð fyrir í upphaflegum áætlunum stjórnvalda og í júní höfðu eingöngu um 34 þúsund einstaklingar nýtt sér þessa heimild. Ekki liggja fyrir upplýsingar um þá sem ekki eiga fasteign og geta nýtt séreignar- sparnaðinn síðar við kaup á fasteign. Þegar aðgerðirnar voru kynntar í nóvember 2013 var gert ráð fyrir að séreignarleiðin myndi leiða til um 67 ma.kr. lækkunar á höfuðstól íbúðalána á þremur árum. miðað við stöðuna í júní.5 Framlagi stjórnvalda til höfuðstólslækkunar var flýtt frá því sem upphaflega var áætlað og hafa þeir sem þegar hafa samþykkt lækkunina fengið greidda um ¾ hluta hennar. Gert er ráð fyrir að hún verði að fullu greidd í janúar næstkomandi. Í kjölfar aðgerðanna lækkuðu skuldir heimila töluvert í byrjun árs. Þær hafa hins vegar hækkað lítillega á ný á öðrum fjórðungi ársins og voru 85% af áætlaðri landsframleiðslu ársins 2015 (mynd III-15) sem er svipað og þær voru um mitt ár 2004. Skuldahlutfallið var hins vegar um 10½ prósentu af landsframleiðslu lægra en í árslok 2014 og um 40 prósentum lægra en það fór hæst árið 2009. Hlutfall skulda fyrirtækja af landsframleiðslu hefur að sama skapi lækkað. Það var um 8½ prósentu af landsframleiðslu lægra en í árslok 2014 og hefur ekki verið lægra frá árinu 2003. Skuldahlutfall einkageirans í heild hefur því ekki verið jafn lágt frá árslokum 2003. Aðgengi að lánsfé hefur aukist og útlánsvextir hluta lífeyrissjóða lækkað Nafnvextir óverðtryggðra íbúðalána stóru viðskiptabankanna þriggja hækkuðu í takt við vaxtahækkun Seðlabankans í júní og ágúst líkt og vextir óverðtryggðra innlána (mynd III-16) en sambærilegir vextir verðtryggðra inn- og útlána bankanna höfðu hins vegar lítið breyst á sama tímabili (mynd III-17). Vextir verðtryggðra sjóðfélagalána hluta lífeyrissjóða hafa hins vegar lækkað í takt við lækkun ávöxtunarkröfu á skuldabréfamarkaði og eru nú u.þ.b. ½ prósentu lægri en sambærilegir vextir viðskiptabankanna. Þá hafa einhverjir sjóðir jafnframt hækkað veðhlutföll í 75% og lækkað lántökukostnað nýrra útlána. Þrátt fyrir að vextir viðskiptabankanna hafi ekki lækkað með sama hætti enn sem komið er gefur nýleg vaxtalækkun eins af stóru bönkunum til kynna að það gæti breyst. % Mynd III-17 Vextir íbúðalána viðskiptabanka og lífeyrissjóða1 Janúar 2012 - október 2015 1. Einfalt meðaltal lægstu vaxta. 2. Vextir fastir frá 5 árum og allt upp í allan lánstímann. Heimildir: Almenni lífeyrissjóðurinn, Arion banki, Festa lífeyrissjóður, Gildi lífeyrissjóður, Íslandsbanki, Landsbankinn, Lsj. verslunarmanna, LSR, Seðlabanki Íslands. Verðtryggð húsnæðislán viðskiptabanka með breytilegum vöxtum Verðtryggð húsnæðislán lífeyrissjóða með breytilegum vöxtum Verðtryggð húsnæðislán viðskiptabanka með föstum vöxtum² Verðtryggð húsnæðislán lífeyrissjóða með föstum vöxtum² 3,0 3,5 4,0 4,5 5,0 2012 2013 2014 2015 % Mynd III-16 Meginvextir Seðlabanka Íslands og vextir viðskiptabanka1 1. janúar 2012 - 21. október 2015 1. Einfalt meðaltal lægstu vaxta íbúðalána hjá Arion banka, Íslandsbanka og Landsbanka. 2. Vextir fastir í 3-5 ár. Heimildir: Arion banki, Íslandsbanki, Landsbankinn, Seðlabanki Íslands. Meginvextir Seðlabanka Íslands Óverðtryggð húsnæðislán viðskiptabanka með breytilegum vöxtum Óverðtryggð húsnæðislán viðskiptabanka með föstum vöxtum² Tékkareikningar einstaklinga Óverðtryggðir sparnaðarreikningar 0 1 2 3 4 5 6 7 8 2012 2013 2014 2015

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.