Peningamál - 04.11.2015, Blaðsíða 36
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
5
•
4
36
INNLENT RAUNHAGKERFI
Framlag utanríkisviðskipta til hagvaxtar neikvætt þrátt fyrir
mikinn vöxt útflutnings
Spáð er að innflutningur vaxi meira en útflutningur í ár og framlag
utanríkisviðskipta til hagvaxtar verði því töluvert neikvætt annað árið
í röð (mynd IV-15). Á fyrri hluta ársins var það raunin samkvæmt
tölum Hagstofunnar þrátt fyrir mikinn vöxt útflutnings. Í spánni er
áætlað að framlagið á seinni hluta ársins verði heldur neikvæðara en
á þeim fyrri m.a. vegna þess að talið er að ekki verði framhald á jafn
örum vexti tekna einkaleyfa og átti sér stað á öðrum ársfjórðungi.
Á árinu í heild er spáð um 2 prósentna neikvæðu framlagi utanríkis-
viðskipta til hagvaxtar og kemur það í kjölfar 3 prósentna neikvæðs
framlags í fyrra.
Horfur á minnkandi afgangi á vöru- og þjónustuviðskiptum
Á síðasta ári nam afgangur á vöru- og þjónustujöfnuði tæplega 6½%
af landsframleiðslu. Á fyrri hluta þessa árs mældist áþekkur afgangur
og í fyrra og horfur fyrir árið í heild eru svipaðar. Gert er ráð fyrir rétt
liðlega 6% afgangi sem er nokkru minni afgangur en spáð var í ágúst.
Líkt og í fyrri spá er gert ráð fyrir að afgangurinn minnki á næstu árum
og er nú talið að hann verði kominn í um 5% á næsta ári og í 3% árið
2018 (mynd IV-16).
Afgangur á viðskiptajöfnuði minnkar með áþekkum hætti
Undirliggjandi halli frumþáttatekna að meðtöldum rekstrarframlögum
nam 23 ma.kr. á fyrri helmingi ársins sem er ívið meiri halli en búist
var við í ágústspánni þar sem bráðabirgðamat á frumþáttatekjum fyrir
fyrsta fjórðung ársins var fært niður. Undirliggjandi viðskiptaafgangur
nam 40 ma.kr. á fyrri helmingi ársins eða tæplega 4% af landsfram-
leiðslu. Líkt og á við um vöru- og þjónustujöfnuð er útlit fyrir heldur
minni afgang á undirliggjandi viðskiptajöfnuði á þessu ári en spáð var
í ágúst. Horfurnar fyrir næstu ár hafa hins vegar lítið breyst og talið er
að afgangur af undirliggjandi viðskiptajöfnuði minnki áfram og verði
um ½% af landsframleiðslu árið 2018 (mynd IV-16). Gangi þetta eftir
mun þjóðhagslegur sparnaður haldast yfir 20% af landsframleiðslu á
spátímanum.
Vinnumarkaður
Örari fjölgun heildarvinnustunda en spáð var í ágúst
Í síðustu spá Peningamála var gert ráð fyrir að áhrif kostnaðar-
hækkana í nýgerðum kjarasamningum kæmu að einhverju leyti fram
í hægari eftirspurn eftir vinnuafli. Fáar vísbendingar eru um þetta enn
sem komið er þótt erfitt sé að meta hver eftirspurnin hefði orðið án
svo mikilla kostnaðarhækkana. Vinnuaflseftirspurn jókst að vísu heldur
hægar á þriðja fjórðungi ársins samkvæmt Vinnumarkaðskönnun
Hagstofunnar (VMK) en hún gerði á fyrri hluta þess. Vöxturinn var
hins vegar heldur kröftugri en spáð var. Heildarvinnustundum fjölgaði
um 2,4% en samkvæmt spánni var áætlað að fjölgunin yrði tæp-
lega 2%. Það sem af er ári hefur heildarvinnustundum fjölgað um
3,5%, en ólíkt því sem var á fyrri hluta ársins skýrist fjölgunin á þriðja
fjórðungi ársins bæði af auknum fjölda starfandi fólks og meðalvinnu-
stunda (mynd IV-17). Líkt og fjallað var um í maíhefti Peningamála
1. Fjöldi á vinnumarkaði sem hlutfall af mannfjölda 16-74 ára.
2. Fjöldi starfandi sem hlutfall af mannfjölda 16-74 ára. Aukning í
hlutfalli starfandi kemur fram sem neikvætt framlag til breytinga á
atvinnuleysi. 3. Hlutfall atvinnulausra af vinnuafli. Vegna námundunar
er samanlagt framlag ekki endilega jafnt heildarbreytingunni.
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
Mynd IV-18
Framlag til breytinga á atvinnuleysi
1. ársfj. 2007 - 3. ársfj. 2015
Breyting frá fyrra ári (prósentur)
Atvinnuþátttaka1
Hlutfall starfandi2
Atvinnuleysi3
-4
-2
0
2
4
6
8
10
‘14 ‘15‘13‘12‘11‘10‘09‘08‘07
Heimild: Gallup
Mynd IV-19
Fyrirtæki sem hyggja á starfsmanna-
breytingar á næstu 6 mánuðum
%
Fyrirtæki sem vilja fjölga starfsfólki
Fyrirtæki sem vilja fækka starfsfólki
Hlutfall fyrirtækja sem vilja fjölga starfsfólki
umfram þau sem vilja fækka því
-60
-40
-20
0
20
40
60
‘06 ‘07 ‘08 ‘09 ‘10 ‘11 ‘12 ‘13 ‘14 ‘15
Heimild: Hagstofa Íslands.
Mynd IV-17
Breytingar á atvinnu og vinnutíma
1. ársfj. 2004 - 3. ársfj. 2015
Breyting frá fyrra ári (%)
Fjöldi starfandi
Meðalvinnutími
Heildarvinnustundir
-15
-10
-5
0
5
10
‘14 ‘15‘13‘12‘11‘10‘09‘08‘07‘06‘05‘04