Peningamál - 04.11.2015, Side 54
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
5
•
4
54
RAMMAGREINAR
nema u.þ.b. 0,5% til lækkunar vísitölunnar. Þegar tollar á sérvöru
lækka einnig um þar næstu áramót er talið að áhrifin muni nema
samanlagt u.þ.b. 1% skili aðgerðirnar sér að fullu út í verðlag. Skatt-
tekjur munu vaxa um 5,2% milli áætlunar fyrir árið 2015 og fjár-
lagafrumvarps fyrir árið 2016 en það samsvarar 1,8% aukningu að
raunvirði en lækkun í hlutfalli af landsframleiðslu úr 28,4% í 28%.
Tekjuáætlun ríkisjóðs má sjá í töflu 2.
Töluverðar kerfisbreytingar hafa verið gerðar frá hausti 2013
í tíð þessarar ríkisstjórnar. Að undanskildum bankaskatti sem eyrna-
merktur var ákveðnu verkefni nemur samanlögð tekjulækkun þess-
ara kerfisbreytinga samtals 1,6% af landsframleiðslu árið 2016.
Uppsöfnuð tekjuáhrif áranna þar á eftir sem hlutfall af landsfram-
leiðslu eru svipuð. Áætlað er að tekjur af bankaskatti nemi 1,1%
af landsframleiðslu. Í töflu 3 er betur hægt að sjá sundurliðuð áhrif
breytinganna. Taflan sýnir áætluð áhrif aðgerða á tekjur á hverju
ári fyrir sig. Lækkun krónutölugjalda að raunvirði er meðtalin. Eldri
tímabundin ákvæði sem falla brott eru t.d. auðlegðarskattur og
orkuskattur á rafmagn.
Tafla 4 Horfur í ríkisfjármálum fyrir árið 2016 – breytingar frá
voráætlun
Rekstrargrunnur Ma.kr.
Afkoma ríkissjóðs 2016 skv. voráætlun 2015
Frumjöfnuður 71,5
Vaxtajöfnuður -60,5
Heildarjöfnuður 11,0
Breytingar á afkomu ríkissjóðs árið 2016 frá ríkisfjármálaáætlun vorið 2015
Breytingar á frumtekjum
Skattar á tekjur einstaklinga 0,9
Tekjuskattur lögaðila 7,8
Virðisaukaskattur 1,5
Áfengisgjald 3,1
Tryggingargjald 2,8
Aðrar breytingar á tekjum -1,5
Samtals breytingar á frumtekjum 14,6
Breytingar á frumgjöldum
Aukið útgjaldasvigrúm umfram forsendur voráætlunar 3,5
Dregið úr aðhaldi frá forsendum voráætlunar 3,3
Endurmat á launa- og gengisforsendum 11,3
Framlög til Íbúðalánasjóðs -1,0
Niðurfærsla verðtryggðra húsnæðislána -2,9
Aðrar breytingar á gjöldum -1,2
Samtals breytingar á frumgjöldum 13,0
Breytingar á vaxtajöfnuði
Uppgreiðsla á láni til Seðlabanka Íslands 4,0
Niðurgreiðsla erlendra lána 3,7
Aðrar breytingar á vaxtagjöldum (hærra vaxtastig o.fl.) -4,5
Lægri vaxtatekjur af veittum almennum lánum -1,2
Hærri vaxtatekjur af bankareikningum ríkissjóðs í Seðlabanka Íslands 1,2
Aðrar breytingar á vaxtatekjum -0,2
Samtals breytingar á vaxtajöfnuði 3,0
Samtals breytingar á heildarjöfnuði 4,6
Afkoma ríkissjóðs 2016 skv. ríkisfjármálaáætlun haustið 2015
Frumjöfnuður 73,1
Vaxtajöfnuður -57,8
Heildarjöfnuður 15,3
Heimild: Fjármála- og efnahagsráðuneytið.