Peningamál - 04.11.2015, Síða 55

Peningamál - 04.11.2015, Síða 55
P E N I N G A M Á L 2 0 1 5 • 4 55 RAMMAGREINAR Gjaldahlið Nokkurs aðhalds er gætt á gjaldahlið. Flestir rekstrarmálaflokkar hækka um 1% að raunvirði en ellilífeyrir, lyf og lífeyrisskuldbindingar vaxa meira. Gert er ráð fyrir að aðhaldsmarkmið í útgjaldarömmum fyrir árið 2016 verði 0,5% fyrir skólakerfi og heilbrigðis- og öldr- unarstofnanir en 0,75% fyrir aðrar stofnanir og verkefni. Þetta gerir það að verkum að dregið er úr aðhaldi frá voráætlun sem nemur 3,3 ma.kr. en auk þess er útgjaldasvigrúm aukið um 3,5 ma.kr. frá því sem var í voráætlun og verður því 7,5 ma.kr. Á móti þessu vegur lækkun útgjalda vegna nokkurra óreglulegra liða frá voráætlun um 5,1 ma.kr. Að samanlögðu hækka frumgjöld því um 13 ma.kr. frá voráætluninni. Rekstrargjöldin sem hlutfall af landsframleiðslu lækka hins vegar um 0,5 prósentur. Það sama á við um rekstrar- og neyslu- tilfærslur en þær lækka um 0,6 prósentur af landsframleiðslu. Í frumvarpinu er miðað við að launaliður ríkissjóðs hækki um 9,5% árið 2016 sem felur í sér endurmat á launaforsendum fjár- laga 2015, einkum vegna áætlaðra launahækkana á seinni helmingi þessa árs, sem hafa áhrif á ársgrundvelli á launakostnað ársins 2016. Á árunum 2017-2019 er gert ráð fyrir 3,7-4,7% hækkun launa- kostnaðar sem er nokkuð umfram verðbólguspá. Sú forsenda var sett fyrir úrskurð gerðardóms í málum Bandalags háskólamanna og Félags hjúkrunarfræðinga en gera má ráð fyrir auknum útgjalda- þrýstingi vegna hans. Óvissa var um niðurstöður kjarasamninga og þess vegna var m.a. mynduð óskipt fjárheimild sem á að gefa svig- rúm til að mæta frávikum, einkum í tengslum við launa-, gengis- og verðlagsforsendur frumvarpsins og til að mæta ófyrirséðum skuld- bindingum sem kunna að falla til á hverju ári. Þessi fjárheimild nemur u.þ.b. 6 ma.kr. Það markmið sem sett var í voráætlun um að viðhalda sama fjárfestingarstigi á tímabilinu sem svarar til 1,2% af landsframleiðslu heldur gildi sínu og er framlengt. Það felur í sér svigrúm, sem mynd- ast frá og með árinu 2017, til nýrra fjárfestingarverkefna sem komi í stað þeirra sem lokið er á tímabilinu. Í töflu 4 má sjá yfirlit yfir þær breytingar sem verða á afkomu ríkissjóðs árið 2016 frá voráætlun ríkisfjármála í apríl til afkomu samkvæmt fjárlagafrumvarpi ársins 2016.

x

Peningamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Peningamál
https://timarit.is/publication/1144

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.