Peningamál - 04.11.2015, Side 57
P
E
N
I
N
G
A
M
Á
L
2
0
1
5
•
4
57
RAMMAGREINAR
taka árið 2008 en það ár breyttist einna mest við endurskoðun þjóð-
hagsreikninga í september sl. Fyrstu tölur fyrir árið 2008 voru birtar
í mars 2009 og sýndu 8,3% hækkun launa og launatengdra gjalda
milli ára (mynd 3). Á þeim rúmu sex árum sem eru liðin síðan fyrstu
tölur birtust fyrir árið 2008 hefur matið breyst í hvert sinn sem nýjar
tölur birtust og oft verulega. Samkvæmt nýjustu tölum fyrir árið
2008 hafa laun og launatengd gjöld hækkað um 3,1% milli ára eða
5,2 prósentum minna en samkvæmt fyrstu birtu tölum og 4,1 pró-
sentu minna en talið var í mars sl. Sá munur sem er á þeim tölum
sem notaðar voru í þeirri spá sem birt var fyrir uppfærslu þjóðhags-
reikninga og nýjustu uppfærslu er því helsti skekkjuvaldur áætlunar
launa fyrir líðandi ár.
Áætlun launa á spátímanum
Til að áætla launaþróun á nýliðnum tíma og á spátímanum er lagt
mat á kjarasamningsbundnar hækkanir launa bæði á almennum
og opinberum vinnumarkaði, hækkanir í tengslum við framkvæmd
samninga og launaskrið. Við mat á kostnaðaráhrifum umsaminna
launahækkana er stuðst við kostnaðarmat samningsaðila sem segja
má að gefi gólfið á matinu. Síðan er lagt mat á hvernig umsamdar
hækkanir munu koma fram í tengslum við framkvæmd kjarasamn-
inga í fyrirtækjum og stofnunum m.a. með því að ræða við fyrirtæki,
stofnanir og stéttarfélög. Sem dæmi má nefna að í síðasta kjara-
samningi var m.a. samið um að frá grunnlaunahækkun ársins í ár
skyldi draga þær launahækkanir sem starfsmaður hefði fengið frá
febrúar 2014. Það er hins vegar líklegt að einhverjir atvinnurekendur
framkvæmi kjarasamninginn með öðrum hætti. Hafi starfsmaður
t.d. fengið hækkun á tímabilinu vegna þess að hann hefur tekið að
sér aukin verkefni eru sennilega fáir atvinnurekendur sem draga þá
hækkun frá við útreikning á launahækkun starfsmannsins.
Einnig er lagt mat á áætlað launaskrið á spátímabilinu. Ekki er
til nein ein skilgreining á hvað nákvæmlega er átt við með orðinu
launaskrið. Samkvæmt íslensku alfræðiorðabókinni er launaskrið
,,hækkun launa umfram ákvæði kjarasamninga, af völdum yfirborg-
ana“. Samkvæmt þessari skilgreiningu væri það launaskrið sem nefnt
var í dæminu hér að framan um kostnað við framkvæmd samninga.
Við mat Seðlabankans á launaskriði á spátímanum er einnig horft
til allra annarra þátta sem gætu haft áhrif á launaþróun en samn-
ingsbundinna hækkana og kostnaðar við framkvæmd samningsins.
Þættir eins og bónusar og álagsgreiðslur skipta hér máli, en mestu
skiptir þó hvort og þá hve mikill slaki eða spenna er á vinnumarkaði.2
Mismunandi niðurstaða eftir því hvaða forsendur eru notaðar
Til að skýra ferlið við mat á launaþróun frekar er hægt að skoða
hvaða áhrif mismunandi forsendur hafa á hækkun launa milli árs-
meðaltala 2014-2015. Útgangspunkturinn er mat bankans á hækk-
un launa í ár en í spánni sem birt er í þessu hefti Peningamála er gert
ráð fyrir að laun hækki um 10,4% milli ársmeðaltala. Þetta er sama
hækkun og var í spánni sem birt var í ágúst þrátt fyrir að nú sé gert
ráð fyrir að laun hækki meira í ár en þá var áætlað og er skýringin
sú að nýjar tölur Hagstofunnar sýna að laun voru að meðaltali hærri
2014 en fyrri tölur höfðu sýnt. Ef hins vegar væri gengið út frá tölum
Hagstofunnar eins og þær voru fyrir endurskoðun hefði hækkunin
milli ársmeðaltala orðið 10,9% eða 0,5 prósentum meiri en í ágúst-
spánni. Ef miðað væri við þróun launavísitölunnar árið 2014 en ekki
þjóðhagsreikninga væri hækkunin milli ársmeðaltala í ár hins vegar
10,1%.
2. Seðlabankinn hefur haft tilhneigingu til að vanmeta launaskrið sem hefur orsakað skekkjur
í spám bankans.
Mynd 3
Laun og launatengd gjöld árið 2008
eftir birtingarári
Breyting frá fyrra ári (%)
Heimildir: Hagstofa Íslands, Seðlabanki Íslands.
0
1
2
3
4
5
6
7
8
9
10
Sept.MarsSept.Mars‘13‘12‘11‘10‘09
2014 2015