Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 3

Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 3
3 GLOÐAFEYKIR Félagstíðindi Kaupfélags Skagfirðinga 22. HEFTI - DESEMBER 1987 Abyrgðarmaður: Olafur Friðriksson Umsjón með útgáfu: Rögnvaldur Gíslason Setning og prentun: SAST sf. - Sauðárkróki. Stofnsjóður félagsmanna Inngangur Á fyrstu árum kaupfélaganna voru þau eingöngu rekin sem pöntunarfélög, og var því fyrst framan af ekki um venjulega verslunarstarfsemi að ræða á þeirra vegum. Eigniráttufélöginyfirleitt engar eða sáralitlar, enda ekki auðvelt um vik að komast yfir þær þegar félögin höfðu engar tekjur. Smám saman þróaðist reksturinn í þá áttina, að félögin tóku að eiga tiltækar vörur allt árið, sem leiddi af sér þörf á húsnæði. Ekki er rúm til að rekja þessa þróun hér, en félagsmenn sáu fljótt, að það félagsform sem þeir höfðu kosið sér vantaði tilfinnanlega fjárhagslegan bakhjarl eða höfuðstól, áhættufé eða hvað menn vilja kalla það. Þegar hlutafélög eru stofnuð, svo dæmi sé tekið, verður hlutafé þeirra slíkur grunnur, sem allt hitt er byggt á. Eftir miklar umræður og bollaleggingar komust menn að þeirri niðurstöðu, að þar sem félagsmenn samvinnufélaganna væru í fæstum tilfellum það fjársterkir, að þeir hefðu bolmagn til þess að leggja þeim til áhættufé í nægilega miklum mæli, yrði að finna annað form. Það þyrfti einnig að innifela innbyggðan öryggisventil gagnvart því, að það sjónarmið, að sérhver félagsmaður hefði einungis eitt atkvæði á félagsfundum, án tillits til fjárstyrks eða viðskiptamagns, héldi sínu fulla gildi. Sú regla var því tekin upp, að félögin tóku að leggja á vöruna, og sá hluti álagningar, sem var umfram kostnað við

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.