Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 4

Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 4
4 reksturinn, varð eign félagsmanna á þann hátt, að viss hluti hans var lagður í svo nefndan stofnsjóð á nafni félagsmannsins, en það sem fram yfir varð, var greitt út. Félögin eflast Eftir því, sem félögunum óx styrkur, létu félagsmenn þeirra þau takast á við stærri og viðameiri verkefni. Félögin byggðu hús fyrir verslun með nauðsynjavörur og vegna sölumeðferðar afurða. Nauðsynleg áhöld og verkfæri voru keypt og margskonar búnaður. Auðvitað gekk rekstur félaganna misvel og áraskipti voru að því, hvort álagning á vörur dugði fyrir útgjöldum. Ef svo varð ekki, var auðvitað ekki um stofnsjóðsframlög að ræða, og efling félaganna þeim mun hægari. Ekki er að efa, að stofnsjóðir félaganna voru eitt öflugasta tækið, sem þau höfðu til uppbyggingar, enda hafa félögin vafalaust átt undir högg að sækja hjá þeim fáu lánastofnunum, sem til voru. Ávöxtun stofnsjóða Fyrst framan af voru ekki reiknaðir vextir af stofnsjóðsinnistæðum. Meðan efnahagsástand var tiltölulega stöðugt og verðlagsþróun öll jafnari og hægari, kom það ekki mjög að sök, og það sjónarmið var ríkjandi, að slíkt ætti ekki við. Þegar aðstæður innanlands breyttust, fóru menn eðlilega að líta þetta öðrum augum. Lengi vel var þó um lága vexti að ræða, og þegar líða tók á þessa öld var sýnt, að stofnsjóðir, eins og annað sparifé, rýrnuðu hratt. Var þó ekki tekið á þessu af mikilli skerpu, því á sama tíma tóku flest félögin einnig lága vexti af skuldum viðskiptamanna sinna, og því í hvorugu tilfelli um raunvexti að ræða. Má í framhjáhlaupi geta þess, að á mestu verðbólguárum sem til þessa hafa komið, árunum frá 1973 til 1983, skekktist eiginfjárstaða flestra kaupfélaga verulega vegna þess, að þau lánuðu út fé með neikvæðum vöxtum. Er það áreiðanlega ein veigamesta ástæðan fyrir hrakandi fjárhagsstöðu margra þeirra og gjaldþroti sumra, ásamt með óviðunandi rekstrarniðurstöðu. A sama tíma hefur arðgreiðsla til félagsmanna nánast lagst af, og má m.a. rekja það til þessa. Ekki má þó gleyma því, að margt annað kemur til, svo sem breyttar fyrningareglur og skattuppgjör. Með kröfu um raunvexti af fjárskuldbindingum og/eða verðtryggingu, kom einnig fram krafa um að stofnsjóðir nytu ekki lakari kjara en annað sparifé. Hafa flest félög því bætt ávöxtun stofnsjóða verulega, eða tekið upp verðtryggingu.

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.