Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 5

Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 5
5 Staða og horfur I árdaga samvinnustarfs urðu menn eins og fyrr greinir þess fljótlega áskynja, að samvinnufélögum eins og öðrum atvinnurekstri væri nauðsyn á fjárhagslegum bakgrunni frá eigendum sínum. Hlyti slíkt að aukast í réttu hlutfalli við kröfur þær, sem gerðar væru til félaganna um framkvæmdir og þjónustu. Þessi aðferð, sem tryggði jafnframt að lýðræðiskröfum félagsskaparins - einn maður, eitt atkvæði - væri fullnægt, lánaðist vel, a.m.k. lengi vel framan af. Hinsvegar má segja, að óstjórn efnahagsmála þjóðfélagsins hafi rýrt gildi þessara sjóða eins og annars langtímafjármagns, og jafnframt haft þau áhrif, að efling þeirra féll svo að segja niður. Þörf fyrir fjárhagslega baktryggingu hefur síður en svo minnkað, þrátt fyrir breyttar efnahagslegar forsendur. Lánsfé innanlands er og hefur verið takmarkað, og fyrirsjáanlegt að slíkt ástand kemur til með að verða eitthvað framvegis. Lánastofnanir gera einnig sífellt vaxandi kröfur til þess, að fyrirtæki í atvinnurekstri sanni fyrir þeim, að eigendur þeirra hafi þá trú á þeim, að þeir vilja leggja í þau fé. Margir áhugamenn um viðgang samvinnufélagsformsins hafa velt því mikið fyrir sér, á hvern hátt slíkt væri framkvæmanlegt, án þess að bera fyrir borð grundvallarhugmyndir þær, sem fyrr eru nefndar og eru undirstöðuatriði í samþykktum allra kaupfélaga, þ.e. að fjárhagsstyrkur og viðskiptamagn hafí ekki áhrif á atkvæðisrétt á félagsfundum. Hafa vangaveltur þessar oftast beinst að því, að annað tveggja grundvallaðist slíkt á upprunalegu fyrirkomulagi, þ.e. að hluti álagningar á vöruverð færi í réttu hlutfalli við viðskiptamagn inn á sérstakan reikning viðkomandi félagsmanns, eða þá að boðin væru til sölu e.k. stofnbréf, sem gengið gætu kaupum og sölum á almennum markaði, og gæfu tiltekna ávöxtun fram yfir verðtryggingu, og greiddist höfuðstóll þeirra að viðbættum vöxtum og verðbótum út eftir tiltekinn tíma. Endurbætur á stofnsjóðsfyrirkomulaginu eru nokkuð bundnar við skattalög, og lög um samvinnufélög, sem nú hafa um allmörg ár verið í endurskoðun. Nútíma tölvutækni og plastkortanotkun veita ýmsa möguleika, sem vert er að skoða nánar í þessu sambandi. Lokaorð Það sjónarmið hefur því miður oft heyrst, að stofnsjóðirnir hafi í raun verið hálfgerð eignaupptaka eða skattlagning, og hið mesta illvirki gagnvart félagsmönnum samvinnufélaganna. Þetta er regin misskilningur. Óhætt er að fullyrða, að án þeirra hefði uppbygging

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.