Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 6

Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 6
6 kaupfélaganna út um land ekki orðið jafn víðtæk og hún varð. Sú uppbygging er án efa sterkasti þátturinn í því, að samdráttur landsbyggðar hefur þó ekki orðið meiri en hann þó er. Má líka benda á, að þar sem kaupfélögunum hefur vegnað vel, hefur byggð orðið hvað sterkust. Það má líka minna á í þessu sambandi, að ein helsta ástæðan fyrir því, að velmegun landsmanna er jafn mikil og raun ber vitni, að byggð hefur haldist á mikilvægum svæðum landsins, og landsmenn sjálfir hafa átt þau atvinnufyrirtæki, sem þar hafa mest að unnið. Þar eiga kaupfélögin ómældan þátt. Verðrýrnun stofnsjóða hefur einnig orðið mikið umtalsefni og að vonum. En sú rýrnun hefur ekki komið kaupfélögunum til hagnaðar, því á sama tíma lánuðu þau félagsmönnum sínum miklu meiri fjármuni án raunvaxta, og rýrnaði það fé því að sama skapi, félögunum til óbætanlegs tjóns. Það er ekki ástæða til fyrir félagsmenn kaupfélaganna að telja stofnsjóðstillag eignaupptöku í neinni mynd. Fullyrða má án nokkurs efa, að ella myndi fólk hafa þurft að greiða sömu fjármuni, eða það sem líklegra er, miklu hærra vöruverð, ef kaupfélögin hefðu ekki komið til. Þau hafa víst ævinlega verið sú viðmiðun, sem litið hefur verið til í verðlagningu eins og dæmin sanna. Samvinnumenn þurfa því að velta því rækilega fyrir sér á næstu árum, á hvern hátt stofnfjármálið verði best leyst í framtíðinni. Verður það með sölu stofnbréfa, eða með tæknivæðingu og endurbótum stofnsjóða, eða með einhverju öðru? Verður stofnsjóðunum breytt þannig, að þeir verði meðe.k. gegnumstreymis fyrirkomulagi? Eða eru einhverjar allt aðrar lausnir í sjónmáli? Hér er því um nauðsynjamál að ræða, sem verðugt er að ræða á næstu deilda- og aðalfundum, og gaman væri að gefa félaginu það í afmælisgjöf á 100 ára afmælinu, að aðalfundur samþykkti nýtt og vandað fyrirkomulag þessa íjárhagsþáttar.

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.