Glóðafeykir - 01.12.1987, Side 9

Glóðafeykir - 01.12.1987, Side 9
9 Vísnaþáttur Þorsteinn bóndi á Varmalandi - hag- yrðingur góður - sendi Glóðafeyki eftirfarandi stökur, til birtingar, með nokkrum eftirgangsmunum þó. Þorsteinn er ljóðahneigðin í blóð borin, afkomandi Bólu- Hjálmars og sonur hins kunna hagyrðings Asgríms Kristinssonar, Asbrekku í Vatnsdal. Vorvísur Grennist víða guma þor, gnauða svalir vindar. Grætur himinn, glatað vor, grána íjallatindar. Veðraíjandi frá mér snýr, fjármannsvanda lýkur. Sunnan andi óskahlýr yfir landið strýkur. Vindar þagna, vornótt hljóð, vekur unað jörðin. Júnísólin sæl og ijóð siglir yfir fjörðinn.

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.