Glóðafeykir - 01.12.1987, Qupperneq 17

Glóðafeykir - 01.12.1987, Qupperneq 17
GLÓÐAFEYKIR 17 Hofsafrétt höfðu komið sér upp flutningatækjum til að flytja fé í afrétt, og þótti þeim erfítt að sæta því að geta ekki notað þau til að flytja fé að sláturhúsi. En til þess að geta gert hagstæða samninga um flutninga að sláturhúsi, þótti meirihluta bænda nauðsynlegt að geta tryggt flutningsaðilum helst alla flutninga að húsinu. Ekki skal farið nánar út í þessa sálma hér, en auðvitað varð allt þetta til þess að nýting hússins var og er ekki eins og skyldi. Ný tækni, ný vinnubrögð Meðan á undirbúningi byggingarinnar stóð voru uppi vangaveltur um það meðal forráðamanna KS, hvort ekki væri rétt að reyna að leysa það vandamál sem skapast á hverju hausti við útvegun húsnæðis fyrir utanbæjarfólk sem vinnur að slátrun. Vildu þeir því gera ráð fyrir gistiaðstöðu í sláturhúsinu. Leyfi fyrir því fékkst þó ekki, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir þáverandi kaupfélagsstjóra, Helga Rafns Traustasonar. A fleiri sviðum varð að láta undan yfirvöldum, þótt erfitt væri að sætta sig við það. Helgi Rafn hafði kynnst því erlendis, að kjöt var yfirleitt látið hanga og meyrna áður en það fór í neyslu eða var fryst. Hafði hann því áhuga fyrir því að kjötupphengi sláturhússins yrði haft það stórt, að það rúmaði meira en eins dags slátrun. Voru bæði forráðamenn lánastofnana og heilbrigðisyfirvöld á einu máli um að slíkt væri bæði rangt og óþarft. Heilbrigðisyfirvöld töldu að heilnæmi kjötsins yrði skert með þessu móti, og lánastofnanir að kostnaðarauki sem af þessu leiddi væri óréttlætanlegur. En svo bregður við, að nú á allra síðustu árum eru menn að átta sig á, að svokölluð kæliherping, sem stafar af of örri kælingu kjöts eftirslátrun sé of algeng, og nú eru víst allir orðnir sammála um að kjötið þurfi að hanga og meyrna áður en þess er neytt. Er þá sláturhúsum og forráðamönnum þeirra kennt um, og menn furðu gleymnir á fyrri fullyrðingar í þessu efni. Þegar svo stórgripasláturhús var byggt við húsið nokkru seinna, hafði Helgi Rafn haft spurnir af tæki, sem flýtti fyrir meyrnun með notkun rafstraums. Tókst honum að afla slíks tækis, sem síðan hefur verið notað í sláturhúsinu á stórgripi. Eins og hér er þegar komið inn á, var strax í upphafi gert ráð fyrir, að stórgripasláturhús yrði reist í nánum tengslum við sauðfjárslátur- húsið. Var það m.a. nauðsynlegt vegna þess að þær aðferðir, sem notaðar voru við stórgripaslátrun í eldra húsinu nýttust ekki í því nýja. Að auki var slátrun stórgripa sífellt að aukast, og auknar kröfur gerðar til tækni við þá slátrun. Þetta sláturhús er ekki ýkja stórt að flatarmáli, en vel tækjum búið. Með tilkomu þess opnaðist möguleiki á slátrun allt
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Glóðafeykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.