Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 19

Glóðafeykir - 01.12.1987, Blaðsíða 19
GLÓÐAFEYKIR 19 Lokaorð Innanlandsmarkaðurinn hefur lengst af verið mikilvægasti markaður hins íslenska landbúnaðar. Það hefur því valdið ómældum erfiðleikum, að sala landbúnaðarvara á innanlandsmarkaði hefur verið að dragast saman á íbúa frá því um 1970. Má ætla, að þær verðsveiflur, sem hér á undan er drepið á, og leitt hafa af geðþóttaákvörðunum misviturra stjórnmálamanna, ásamt með auknum áróðri fyrir neyslu innfluttrar gerfifæðu séu einn stærsti þátturinn í því efni. Ekki er enn séð fyrr endann á þeirri þróun, og er mál margra, að taka þurfi alla sauðfjárræktarstefnuna til endurskoðunar til að mæta betur kröfum markaðarins. Aðgerðir hófust árið 1980 með löggjöf til þess að draga landbúnaðarframleiðsluna saman svo hún nemi innanlandsneyslu. Þessar aðgerðir, ásamt með bústofnssamdrætti er leitt hefur bæði af niðurskurði vegna búfjársjúkdóma, svo og erfiðu árferði árin 1979, 1981 og 1983, hafa leitt til þess, að sláturfjárfjöldi hefur dregist verulega saman. Haustið 1978 var slátrað á sláturhúsi KS um 65 þúsundum fjár, en núna í haust (1986) er gert ráð fyrir að slátrun sé nálægt 45 þúsund fjár, og er þó þar innifalinn nokkur niðurskurður vegna riðuveiki. Má því búast við enn minni slátrun næsta haust vegna samdráttar bústofns. Það er því augljóst hverjum manni, að nýting hússins er með þessu móti orðin alltof léleg. Þarf því að vinda bráðan bug að því að bregðast við þessari þróun á raunhæfan hátt, þannig að allir megi vel við una. En þann kafla í sláturhúsasögu KS munu aðrir skrifa, og læt ég því þessu spjalli lokið. Skrifað í september og október 1986 Guðbr. Þorkell Guðbrandsson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Glóðafeykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.