Glóðafeykir - 01.12.1987, Side 24

Glóðafeykir - 01.12.1987, Side 24
24 GLÓÐAFEYKIR -Og hvað var til ráða? -Þá var mikið atvinnuleysi á Siglufirði, eins og allstaðar á þessum árum. Eg var svo lánsamur að fá pláss á síldarskipi, línuveiðaranum Ármanni frá Reykjavík. Skipstjóri var Gestur Guðjónsson frá Siglufirði virtur og heppinn, afbrigða sjómaður og valmenni. Vertíðin gekk vel, og mér tókst að greiða skuldir mínar. Mér leið vel á sjónum og stundaði hann til 1940, lengst með Gesti, fyrst á Ármanni, en síðar á litlum mótorbátum frá Siglufirði, sem voru gerðir út á vetrarvertíð frá Suðurnesjum, Keflavík og Sandgerði. Það var harðsótt sjómennska, einkum ferðirnar suður, sem famar voru fyrstu dagana í janúar. Ein slík ferð er mér minnisstæð. Við lögðum upp frá Siglufirði að kvöldi 2. janúar á m/b Draupni (16 tonna). Hægur andvari var á af norðri og snjómugga. Er við komum vestur fyrir Skaga, brast á norðaustan garður með stórsjó og dimmviðri. Var þá tekin stefna djúpt fyrir Strandir og Horn og síðan suður með Vestfjörðum, án þess að hafa landkynningu. Þegar veðrið lægði og rofaði til, vorum við út af Patreksfirði. Þar var legið í vari um nótt. Þess má geta, að engin siglingatæki voru þá komin í fiskibáta, nema áttaviti og skriðmælir. Sem betur fer eru nú slíkar ferðir aflagðar, skipin stærri og betur búin tækjum, vinnuaðstaða og vistrými á aðra lund en þá, og er það vel. Nóg mun samt reyna á þá tiltölulega fáu menn, sem enn eiga frumþáttinn í að brauðfæða þjóðina, sem og aðrir þeir, er starfa að undirstöðuatvinnugreinunum. -Og svo festir þú ráð þitt? -Já árið 1939 giftist ég fyrri konu minni, Hólmfríði Guðmundsdóttur frá Reykjum í Ólafsfirði, f. 25. 7. 1913. Mjög erfitt var um húsnæði á Siglufirði um þessar mundir, og fengum við leigt eitt lítið herbergi með aðgangi að eldhúsi, er við höfðum fram að áramótum. Þá höfðum við eignast dóttur, sem er Erna Guðrún, nú húsmóðir á Hofsósi. Henni komum við í fóstur til ömmu sinnar og afa á Reykjum, en fórum bæði á vertíð í Sandgerði. Þegar heim kom um vorið, sat við það sama í húsnæðis- og atvinnumálum á Siglufirði. Brugðum við þá á það ráð að flytja að Grafargerði með Ernu litlu. I Grafargerði bjuggu þá Steinþór bróðir minn og Sóley kona hans. Bjuggum við bræður þar í félagi í nokkur ár og stunduðum sjóinn með, á trillubáti, sem við áttum. Þann 19. desember 1943 eignuðumst við dreng, Vilhjálm Hólm, sem

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.