Glóðafeykir - 01.12.1987, Qupperneq 26

Glóðafeykir - 01.12.1987, Qupperneq 26
26 GLÓÐAFEYKIR sinn. Skrifstofan og greiðasala voru einnig fluttar í hið nýja hús. Verslunin var byggð upp sem opin verslun, þ.e. blanda af sjálfsafgreiðslu og venjulegri afgreiðslu, en þarna var verslað með allar venjulegar nauðsynjavörur. A þessum árum var verið að þreifa fyrir sér með kjörbúðir, sem svo eru nefndar nú. Þá var nýbúið að byggja slíkt verslunarhús á Hvolsvelli og í Ólafsfirði. Var hið síðarnefnda mjög áþekkt því, sem byggt var á Hofsósi. Nú gerbreyttist öll vinnu aðstaða, bæði á skrifstofu og í verslun, varð mjög góð, eftir því sem þá gerðist víða. Ég tel, að bygging þessi hafi heppnast vel, og enn gegnir húsið hlutverki sínu og mun gera í náinni framtíð, án mikilla breytinga. Lítil lán fengust til byggingarinnar, og vissulega var erfitt að kljúfa þann kostnað, en tókst þó. Á þessum árum átti kaupfélagið að hálfu, móti Samvinnufélagi Fljótamanna, kjötbúð og kjötvinnslu ásamt sláturhúsi á Siglufírði, auk sláturhússins, er rekið var í Hofsósi. Kjötbúðin seldi mjög mikið af kjötvörum fyrir okkur og greiddi þær inn í reikning í Utvegsbankanum á Siglufirði. Það var ómetanlegt hagræði og Iétti mjög lausafjárstöðu félagsins. Margar ferðir fórum við, stjórnin og ég, til Siglufjarðar, ásamt stjórnendum kaupfélagsins í Haganesvík, til að ræða málefni kjötbúðarinnar. Góðar minningar eru tengdar þeim ferðum, enda var samvinna félaganna með ágætum. -En hvað um fiskvinnsluna? -Jú. Félagið átti og rak hraðfrystihús í Hofsósi, sem hafin var bygging á 1946. Einnig var rekin fiskimjölsverksmiðja, sem K.S. átti að hálfu. Frystihúsið var önnur meginstoð félagsins, þó stundum væri á brattann að sækja, og ekki bætti úr kórinn að sunnan, sem söng sama lagið og enn í dag. Ég hafði í fyrstu nokkrar áhyggjur af rekstrinum, en vandist því fljótt, þegar ég fór að kynnast málum og gat dæmt betur um stöðu fyrirtækisins. Enda fór svo, að fyrirtækið gekk allvel og skilaði nokkrum hagnaði. Frystihússtjóri var öll árin Björn Björnsson og 1. vélstjóri Pétur Ólafsson, mjög samviskusamir og góðir starfsmenn. Á ég þeim, ásamt mjög duglegu starfsfólki, það að þakka hvað reksturinn gekk vel. Árið 1962 var ráðist í stækkun og endurbætur á frystihúsinu. Var þá byggður nýr fiskvinnslusalur, fiskmóttaka stækkuð, byggður geymsluklefí fyrir ís og hafin framleiðsla á skelís, aukin frystiafköst hússins og rafmótorar keyptir í stað díselvéla, sem áður höfðu drifið frystipressurnar. Var sem fyrr lítið um lán úr bönkum. Þó fengum við
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Glóðafeykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.