Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 31

Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 31
GLÓÐAFEYKIR 31 Stefán einnig allvel leit út, þess sagan getur. Hér var frábær fjörubeit flesta daga í vetur. Einhverjir minntust á, að nú mundi Leirgerður þykkna undir belti, svo margir hefðu þeir verið sem hefðu verið að kjá við hana um sýslufundinn. Þá orti sekreterinn: Ennþá Gerður, - ættum vér - ótal börnin getur sem að furða engin er eftir þennan vetur. En hver mun eiga hópinn þann? Hvíslar margur dóni. En bragnar segja að blóðprufan beinist helst að Jóni. Þessi vísa þarfnast ekki skýringa. Eftir Jón á Hofi. Leiðsögn brjálar mæta menn myrkvuð sálartýra. Vegamálin eru enn ekki þjál að skýra Árið 1954 hófst sýslufundur 23. mars og sat nú Jón Bakkaskáld fundinn, og var nú bjart yfir mönnum og gleði mikil. Orti sekreteri um leið og hann settist niður og sendi til vinar síns. Sýslufundur er settur enn allt syngur með gleði tón. Víða safnast að vaskir menn úr Viðvíkurhreppi er Jón. Aldursforseti okkar var því æfin er býsna löng Honum til vegs og virðingar er veifa á hverri stöng.

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.