Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 33

Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 33
GLÓÐAFEYKIR 33 Sami maður kvað um, er einn nefndarmanna kvartaði um vinnu hörku hjá reikninganefndinni. Elju strangir, aldrei rangir- illt er í fangi drottinvald. Nefndarangi inni hangir enn er í gangi- þrælahald. Er tveir dagar voru eftir af fundinum, átti Jón bóndi Jónsson á Hofi - nefndarmaður Hofshrepps - sextugsafmæli. Flestir nefndarmenn fóru í hófið til Jóns en ekki þorði sekretari að Iáta það eftir sér, því hann átti eftir mikið óbókað í gerðabókinni er fundur átti að hefjast kl. 9.00 morguninn eftir en það var jafnan venja, að fundur hæfist með því að lesa upp fundargerðina frá deginum áður, en til þess treysti sekreterinn sér ekki, því hann bjóst við að vera miður vel fyrir kallaður að ganga til skrifta er heim kæmi frá Hofi og hefði setið þar að sumbli fram á miðja nótt. Reyndar bjóst hann ekki við að fundur mundi byrja stundvíslega - eins og kom á daginn - en þorði þó engu til að hætta í því efni. Er hann leit yfír fundarmenn daginn eftir varð honum ljóð af munni: Undrist enginn þó að þeim þreytu aukist dofi. Því allir komu þeir aftur heim öldrukknir frá Hofi. Sögum öllum saman ber og sumir yfir hlakka. Að margir verri virtust þar vera, en Jón á Bakka. Þessu svaraði Bakkaskáld þannig: Víðar supu vinarskál víst með hugarhlýju. En enginn hóf þar á því mál að ég lægi í spýju. Drakk ég veig af lífsins list laugaðist gleði bárum. Skálaði við skjómakvist skrýddur silfurhárum.

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.