Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 34

Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 34
34 GLÓÐAFEYKIR Kaupfélag Austur Skagfirðinga Annálabrot í samantekt Geirmundar Jónssonar Hinn 17. nóvember 1918, var haldinn stofnfundur pöntunarfélags að Mið-Mói í Fellshreppi. Stofnendur voru 19 bændur úr Fellshreppi. Kosin var stiórn hins nvia félaes oe hlutu kosnineu: Tómas Jónasson Mið-Hóli, Sveinn Arnason Felli og Jón Guðnason Heiði. Fyrstu lög félagsins eru undirrituð af 29 bændum, flestum úr Fellshreppi. Bráðabirgðaákvæði eru í þeim lögum svohljóðandi: „Stjórn sú, sem kosin var á fundi 17. 11. 1918, fer með stjórn félagsins til aðalfundar 1920. Sömuleiðis telst fyrsta starfsár félagsins til 1. janúar 1920. Aðaltundur 1920 var haldinn 20. mars að Skálá í Fellshreppi. Þá var lagt fram og samþykkt nýtt lagafrumvarp, þar sem félagssvæðið nær yfír Fells og Hofshreppa óskipta (Hofsós tilheyrði þá Hofshreppi). Þá var og samþykkt að félagið gengi í S.I.S. Árið 1922 kaupir félagið verslunar og íbúðarhús Ólafs Jenssonar og Jóns Björnssonar, en þeir hættu þá verslunarrekstri á Hofsósi. Stendur það hús enn og er í fjörunni utan Hofsár. Var það í daglegu tali nefnt á Sandi. Var þá opnuð þar sölubúð, en fram að þeim tíma, var aðstaða mjög erfið með vörudreifingu vegna húsleysis þó mun félagið hafa haft afnot af skúr, sem K.S. átti innan Hofsár, til vörugeymslu. Árið 1922 var Tómas Jónasson ráðinn fyrsti framkvæmdastjóri félagsins. Fram að þeim tíma hafði hann stjórnað félaginu, sem stjórnarformaður. Tómas var framkvæmdastjóri félagsins til ársins 1939, er hann fórst á leið til Siglufjarðar með m/s Þengli. Var sú ferð farin vegna Kjötbúðar Siglufjarðar, en félagið hafði stofnað það fyrirtæki árið 1928, ásamt Samvinnufélagi Fljótamanna. Kjötbúð Siglufjarðar var rekin af þessum aðilum, ásamt sláturhúsi og kjötvinnslu, til ársins 1966, en var þá seld Kaupfélagi Siglfirðinga. Á þessum árum hafði félagið rekið sláturhús á Hofsósi, svo og síldarsöltun. Árið 1938 var hafin bygging frysti og sláturhúss og var það fyrsti vísir að því er síðar varð Hraðfrystihús K.A.S.H. Árið 1929 bættist ný deild við félagið úr Hólahreppi Var þá félagssvæðið Fells-, Hofs-, og Hólahreppur.

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.