Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 35
GLÓÐAFEYKIR
35
18. maí 1957. Starfsfólk K.A.S.H. Frá vinstri Friðbjörn Þórhallsson, Jón
Kjartansson, Geirmundur Jónsson, Óli M. Þorsteinsson, Gísli Benjamínsson,
Bjöm Bjömsson og Ragnheiður Erlendsdóttir. Á myndina vantar Pétur Ólafsson.
Arið 1939 var ráðinn nýr framkvæmdastjóri að félaginu, Kristján
Hallsson. Sama ár var nafni félagsins breytt og það nefnt Kaupfélag
Austur - Skagfirðinga, skammstafað K.A.S.H. Kristján var
framkvæmdastjóri félagsins til ársins 1955.
Á árinu 1946 var hafin bygging hraðfrystihúss, sem síðan hefur
starfað og 1947 voru keyptar húseignir verslunar Vilhelms
Erlendssonar á Hofsósi. Sölubúðin var notuð fyrir vefnaðarvörubúð,
en íbúðarhúsið til gistihússreksturs, sem félagið hóf þá.
Á því ári þ.e. 1947, var og byggð fiskimjölsverksmiðja í félagi við
Kaupfélag Skagfirðinga, er var rekin sem hlutafélag. Þá var ennfremur
stofnað til bifreiðareksturs, vegna aðdrátta félagsins og til flutninga
um félagssvæðið.
I aprílmánuði 1955 tók við framkvæmdastjórn félagsins
Geirmundur Jónsson og starfaði hann hjáfélaginu þar til í maí 1966 er
hann lét af störfum þar.
Árið 1954 samþykkti stjórnin, að hefja byggingu nýs verslunarhúss.
Var grunnur þess steyptur það haust og byggingu svo fram haldið þar
til flutt var í húsið vorið 1957. Var þá sameinuð í eitt, öll verslun
félagsins, svo og skrifstofur og greiðasala. Árið 1962 samþykkti
stjórnin stækkun og endurbætur á hraðfrystihúsinu. Var þá byggður
nýr fiskvinnslusalur, fiskmóttaka stækkuð, byggður geymsluklefi fyrir
ís, og hafin framleiðsla á skelís. Einnig voru þá aukin frystiafköst
hússins og rafmótorar keyptir í stað díselvéla, sem áður höfðu drifið
frystipressurnar.
Á þessu tímabili voru stjórnarformenn þeir Jón Konráðsson í Bæ,
frá 1922 til 1955 og Jón Jónsson á Hofi 1955 til 1966.