Glóðafeykir - 01.12.1987, Qupperneq 36

Glóðafeykir - 01.12.1987, Qupperneq 36
36 GLÓÐAFEYKIR Mjólkursamlag Skagfirðinga Söguspjall Mjólkursamlag Skagfirðinga hefur nú starfað í hálfa öld og nokkrum árum betur. í Sauðárkrókssögu Kristmundar Bjarnasonar segir svo á einum stað „Stærsta og merkasta spor í iðnaðarmálum var stigið 1934 er Kaupfélag Skagfirðinga lét hefja smíði mjólkursamlagsins” og víst má það satt vera. Auðsætt er og að það spor er þá var stigið markaði ekki síður djúp og varanleg spor í skagfírskum byggðum, breytti búskaparháttum þorra skagfirskra bænda og því meir er fram liðu stundir og stuðlaði mjög að framförum og þróun allri til nýtískulegri búskaparhátta, aukinnar ræktunar, meiri vöruvöndunar og fjölbreyttari möguleika á ýmsum sviðum. Er raunar vandséð hvernig bændur, margir hverjir, hefðu staðist þau heljarhögg, er mæðiveikin og aðrir innfluttir búfjársjúkdómar greiddu þeim, ef mjólkursamlagið hefði ekki verið risið á legg áður en þær öldur skullu yfir af fullum þunga. Hér verður saga Mjólkursamlags Skagfirðinga ekki rakin til neinnar hlítar, en stiklað á stóru og staldrað við ýmsa merkisteina byrjunaráranna, sem ætla má að farið sé að skefla yfir í hugum manna. Ekki er nú vitað hvenær fyrst kviknaði sú hugmynd að stofna til mjólkursamlags á Sauðárkróki, en vafalaust hafa skagfirðingar fylgst af athygli með þeim hræringum, sem áttu sér stað í öðrum byggðarlögum í þessum málum, og leiddu til stofnunar Mjólkursamlags K.E.A. 1928 og Mjólkurbús Flóamanna 1929. Og þeir voru heldur ekki með öllu ókunnir rekstri mjólkurbúa á samvinnugrundvelli, þótt í öðru formi væru en síðar varð. I héraðinu voru um árabil rekin tvö mjólkurbú á fyrstu áratugum aldarinnar þ.e. rjómabúið við Reynistað og rjómabúið á Gljúfuráreyrum. Vafalaust mega þau með nokkrum rétti teljast undanfari mjólkursamlagsins og sú reynsla, sem af rekstri þeirra fékkst, skilað sér að einhverju marki til arftakans. En þau urðu skammlíf, bæði og lögðu upp laupana á árunum 1918 og 1919. En þó að svo færi um sjóferð þá, má gera ráð fyrir því að ýmsum hafi ekki þótt reynt til þrautar og hér lægju ónýttir möguleikar og sjálfgefið
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Glóðafeykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.