Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 38
38
GLÓÐAFEYKIR
aðalleiðir teldust slarkfærar um hásumarið. Eigi að síður ákvað stjórn
K.S. að hefjast handa. I marsmánuði 1934 fékk hún þá Jónas
Kristjánsson, samlagsstjóra og Sveinbjörn Jónsson, bygginga-
meistara til þess að kanna aðstæður allar, gera teikningar og áætlun.
Voru gögn þeirra lögð fyrir aðalfund K.S. í aprílmánuði sama ár. Þá
hafði framkvæmdastjóra tekist að afla ríkisstyrks til framkvæmda, er
næmi allt að fjórða hluta kostnaðar, auk loforða um lánafyrirgreiðslu.
Að þeim upplýsingum fengnum, var einróma samþykkt tillaga Ólafs á
Hellulandi þess efnis, að reist skyldi þegar á því ári
mjólkurvinnslustöð og stjórninni falin framkvæmd málsins.
Enn var samið við þá Sveinbjörn og Jónas. Skyldi sá fyrrnefndi
teikna húsið en Jónas vera til ráðuneytis um val á vinnuvélum og
fyrirkomulag allt innanhúss. Hróbjartur Jónasson á Hamri tók að sér
smíði hússins ásamt Guðmundi Sigurðssyni, Sauðárkróki.
Framkvæmdir hófust þann 10. mars 1934.
Byggingar K.S. við Aðalgötu. Mjólkursamlagið fyrir miðju.
Rösklega 14 mánuðum síðar, þann 16. dag júlímánaðar, barst fyrsta
mjólkin til samlagsins og sést þar á, að vel hefur verið að verki staðið.
Samlagsstjóri var ráðinn norskur maður, Jens Killengren að nafni - en
stóð stutt við - og við tók Skafti Óskarsson frá Kjartanstaðakoti og
stjórnaði næstu árin.