Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 40

Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 40
40 GLOÐAFEYKIR starfsemina, þar eð hið eldra þótti úrelt orðið og ófullnægjandi. Sýnir það glögglega hve ör þróunin var og hefur trúlega farið fram úr björtustu vonum brautryðjendanna. Tveimur árum síðar þ.e. árið 1948 var svo hafíst handa við byggingu hins nýja mjólkursamlagshúss á Flæðunum. Þar voru enn á ferðinni þeir hinir sömu menn og áður, þeir Hróbjartur Jónasson og Guðmundur Sigurðsson. Teikningar að húsinu gerði Þórir Baldvinsson. Framkvæmdum lauk síðla árs 1951 og var húsið þá fullbúið vélum og tækjum. Þá var öll starfsemi flutt í hið nýja hús og hófst vinnsla þar hinn 30. nóvember 1951 eða röskum 17 árum eftir að mjólk barst fyrst að hinu eldra samlagshúsi. A aðalfundi samlagsins 1963, var samþykkt að hefjast handa um viðbyggingu við samlagið og var því verki lokið árið 1966 . Og árið 1974 var vélakostur samlagsins endurnýjaður að verulegu leyti. Keypt bæði fullkomnari og afkastameiri tæki. Segja má að framfarir hafi verið að öllum jafnaði býsna örar og á stundum næsta stórstígar, þá er litið er um öxl og tekið mið af þeim tímum og þeim aðstæðum er ríktu, er þeim var hrundið af stokkum. Enginn skyldi þó ætla að allt gengi fyrir sig án átaka og margvíslegra erfiðleika. Vissulega var oft þungt fyrir fæti og margur þröskuldur á vegi er yfir þurfti að stíga og kostaði baráttu, útsjónarsemi og örugga stjórnun. En forráðamenn samlagsins reyndust alla jafna vandanum vaxnir og mætti þá sérstaklega nefna þar til sögu Jóhann Sólberg samlagsstjóra og þá kaupfélagsstjóra er hann starfaði með, svo og framfaravilja og vakandi áhuga félagsmanna fyrir velgengni samlagsins. Ymis ytri skilyrði tóku og breytingum til hins betra og ber þar hæst stórauknar framkvæmdir í vegamálum svo að nánast mátti byltingu kalla ef miðað er við það ástand sem ríkti þá er samlaginu var ýtt úr vör, og réðu þar mestu um stórvirkar vinnuvélar eftirstríðsáranna sem leystu gömlu vinnubrögðin af hólmi. Þó skorti mjög á að vegakerfið væri í því horfi, sem æskilegt hlaut að teljast. Snjóar á vetrum ollu margvíslegum erfiðleikum í flutningum og reyndust bændum og samlaginu þungur baggi í skauti. Því var það m.a. að farið var að huga að breytingum á flutningakerfinu. Á stjórnarfundi samlagsins þann 24. apríl 1965 var gerð tímamótasamþykkt um mjólkurflutningamálin, er ákveðið var að kanna hvort unnt væri í náinni framtíð að taka upp flutninga með tankbílum, enda þá komin nokkur reynsla á þann flutningamáta í þeim héruðum, sem aðstöðu höfðu besta og þótti einsýnt að horfði til réttrar áttar. En hér voru ýmis ljón á vegi og vóg þar þyngst, sem jafnan áður, hversu vegakerfið var vanbúið að þjóna því

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.