Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 42

Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 42
42 GLÓÐAFEYKIR minnast þeirra með nokkrum söknuði og þakklæti fyrir þau fórnfúsu, erfiðu og giftudrjúgu störf, sem þeir inntu af hendi, þó launin væru sjaldnast í samræmi við vinnuframlagið, enda mundu menn varla ginkeyptir fyrir að taka að sér slík störf nú, við sömu aðstæður. Ekki er of sagt að þeir önnuðust, víðast hvar, að verulegu leyti alla aðdrætti til heimilanna í smáu sem stóru og töldu ekki eftir sér sporin við að greiða úr fyrir viðskiptavininn. Og þegar snjóar ollu erfíðleikum vildi togna úr vinnutímanum, þó stundir væru ekki taldar. Þá var gripið til skóflunnar og bílstjóri og farþegar mokuðu sig gegnum skaflana. Ekki var þá ótítt að liðið væri á nóttu við verkalok og ferðalagið stæði allt að sólarhring. En þetta er liðin saga og verður ekki frekar um fjallað að sinni. Ekki orkar tvímælis að stofnun og starfsemi mjólkursamlagsins hefur átt drýgstan þátt í þeim heillavænlegu breytingum, sem orðið hafa á allri meðferð mjólkur og mjólkurvara, en í þeim efnum var víða pottur brotinn á upphafsárum samlagsins og bar margt til. Fjós voru víða með þeim hætti, að nánast mátti heita útilokað að gæta þess hreinlætis, sem með þurfti við meðferð vörunnar. Gamlar, dimmar og daunillar torfbyggingar. Og efnahagur margra bænda á þá lund að erfitt var úr að bæta, svo að verulegur skriður komst ekki þar á fyrr en kreppuárin voru að baki og almennt tók að rýmkast um efnahag manna. Ymsir hirtu þá og lítt um að fara svo með þessa viðkvæmu vöru, sem skyldi, enda hvort tveggja að þrifnaður er mönnum misjafnlega laginn og gamlir siðir löngum lífseigir, ef ekki kemur til utanaðkomandi afl, sem knýr á um breytingar. Samlagið reyndi eftir mætti að stuðla að aukinni vöruvöndun, enda auðsætt að þar mátti í engu á slaka, ef vel átti að fara, þótt við ramman reip væri að draga. Fyrstu árin var ekkert eftirlit með heilbrigði þeirra gripa, sem mjólk var seld frá og stóð svo mál til ársins 1940, er Guðmundur Andrésson tók það eftirlit á hendur. Frá öndverðu var mjólkin seld neytendum í lausu máli og þótti oft misjafnlega með farið. En með vaxandi kröfum urðu gagnrýnisraddir á slíkt fyrirkomulag háværari. Því var það að á árinu 1960 taldi heilbrigðisnefnd Sauðárkróks, að hreinlæti í mjólkurbúð og meðferð mjólkur væri ekki sem skyldi. Var þá á döfinni sú hugmynd, að selja mjólkina á flöskum og gerð skoðanakönnun þar um meðal bæjarbúa, en þeirri hugmynd hafnað af yfirgnæfandi meirihluta. Má vera, að þar hafi einhverju um ráðið, að flöskumjólkin átti að kosta 20 aurum meira hver lítri, en mjólk seld í lausu máli. Ef til vill hefur þó vaninn og eðlislægt tregðulögmál haft þar úrslitaáhrif. Hvað, sem því líður, þá var sami háttur hafður á og verið hafði, allt til ársins 1966, er keypt var mjólkurpökkunarvél og fitusprengingartæki til samlagsins. Var vélin

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.