Glóðafeykir - 01.12.1987, Side 45

Glóðafeykir - 01.12.1987, Side 45
GLÓÐAFEYKIR 45 Fallnir félagar Ingimundur Bjarnason, járnsmiður á Sauðárkrók, lést 6. mars 1976. Hann var fæddur að Illugastöðum á Laxárdal fremra 16. september 1886, sonur Björns bónda þar Sveinssonar, bónda að Hólabaki í Langadal, og konu hans Ingibjargar Guðmundsdóttur. Ungur fór hann í fóstur til Stefáns bónda í Kirkjuskarði á Laxárdal Guðmundssonar og konu hans Sigríðar Guðmundsdóttur, og hjá þeim hjónum ólst hann upp. Snemma kom í ljós að pilturinn var gæddur hagleiksgáfu og hneigðist mjög til smíða, enda urðu jámsmíðar hans aðalstarf allt til loka. Eigi var um iðnnám að ræða á þeim árum, en meðfædd hugvitssemi og hagleikur entist honum til þess að verða ágætur smiður. Árið 1919 kvæntist Ingimundur Sveinsínu Bergsdóttur bónda á Mánaskál á Laxárdal fremra, Sveinssonar, og konu hans Jóhönnu Sveinsdóttur, alsystur Sigvalda, sjá Glóðaf. 1971, 12. h. bls. 64, hinni ágætustu konu. Reistu þau þegar bú á Kirkjuskarði og bjuggu þar til 1925, en ^ fluttu þá til Sauðárkróks, keyptu húsið Árbakka við Suðurgötu og bjuggu þar æ síðan. Þau hjón eignuðust fjórar dætur og eru allar húsfreyjur í Reykjavík og Kópavogi: Sigríður, Fannlaug, Herdís og Steinunn. Eftir að til Sauðárkróks kom keypti Ingimundur lítinn bát og stundaði sjó með störfum í landi. En alla jafna var þó hugurinn bundinn við járnsmíðar, stundaði hann smíðarnar æ meir er á leið, og einvörðungu upp á síðkastið. Hann fann upp og smíðaði margvísleg áhöld til þess að létta mönnum dagleg störf, svo sem gaffal til að svíða með kindarhausa, áhald til að draga út girðingarkengi, heyýtu og heyspaða, dráttarbúnað á heyvagn o.m.fl. Á efri árum stundaði hann nokkuð pípulagnir og útbjó þá m.a. kerfi á eldavélar, sem nægði til að hita upp litla íbúð. Fleira mætti nefna, er bar ljósan vott hugvitsemi Ingimundar, þótti og mörgum bóndanum gott til hans að leita, ef áhald bilaði. Ingimundur Bjamason

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.