Glóðafeykir - 01.12.1987, Side 56

Glóðafeykir - 01.12.1987, Side 56
56 GLÓÐAFEYKIR í Saurbæ með börnum þeirra hjóna fjórum, en frá árinu 1955 tekur Þórarinn að fullu við búsforráðum í Saurbæ og býr þar síðan meðan ævi endist. Árið 1950 fluttist að Saurbæ unnusta Þórarins, Margrét Ingibjörg Bjömsdóttir bónda á Skatastöðum í Austurdal, Þorsteinssonar, og konu hans Sólborgar Júníusdóttur bónda á Kirkjubóli hjá Víðimýri, Þórarinssonar, eyfirzkrar ættar, og konu hans Sigríðar Jósefsdóttur. Var Björn á Skatastöðum, faðir Margrétar í Saurbæ, albróður Guðjóns á Skatastöðum, sjá Glóðaf. 1970, 11. h. bls. 55. Böm þeirra Þórarins og Margrétar eru fjögur: Eymundur, húsasmiður á Akureyri, Sólborg Jóhanna, bús. á Blönduósi, Hörður, heima í Saurbæ, hefur unnið við húsbyggingar undanfarin sumur- og Hrefna, yngst til heimilis á Sauðárkróki. Þórarinn í Saurbæ var mikill þrifnaðar- bóndi, bætti jörð sína mjög að húsakosti og ræktun, hugsaði vel um allan búfénað. Sjálfum sér treysti hann bezt til allra athafna - og má að vísu telja bæði kost og galla. En í öllu var hann nýtur maður og að honum mikill sjónarsviptir, góðum búþegn og mætum dreng á manndómsaldri. Hann unni sveitinni sinni, jörðinni sinni, unni ljúfum niði Svartár við túnfótinn, þar sem hún löngum stundum söng honum sinn dulmagnaða seið. Þórarinn Eymundsson var meðalmaður á velli, frekar grannvaxinn, dökkur á brún og brá, holdskarpur, geðþekkur maður í sjón og raun. Hann var vel greindur, glaðlyndur, fasprúður, eigi þysmikill, en stilltur og gæfusamlegur og kom sér hvarvetna vel. Hann var greiðamaður einstakur og hjálpfús, naut óskoraðra vinsælda nágranna sinna og sveitunga og var öllum harmdauði, þeim er af honum höfðu einhver kynni. Þórarinn Eymundsson Guðmundur H. Sigurðsson, húsm. á Reynistað, lést 17. ágúst 1976. Hann var fæddur að Spáná (Spræná) í Unadal hinn 5. okt. árið 1900, sonur Sigurðar bónda þar og síðar á Hugljótsstöðum á Höfðaströnd Ólafssonar bónda á Spáná, Ólafssonar bónda að Ósi við Höfðavatn o.v., Hallssonar, og konu hans Margrétar Jakobínu Baldvinsdóttur bónda í Bjarnastaðagerði í Unadal o. v., drukknaði 1904 (f. 1833), Gottskálkssonar bónda í Garðshorni á Höfðaströnd o. v.,

x

Glóðafeykir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.