Glóðafeykir - 01.12.1987, Qupperneq 57

Glóðafeykir - 01.12.1987, Qupperneq 57
GLÓÐAFEYKIR 57 Erlendssonar. Fyrri kona Gottskálks Erlendssonar var Þuríður Hannesdóttir prests og skálds á Ríp, Bjarnasonar, er var því langa- langafi Guðmundar í móðurætt. Ólafur á Ósi, langafi Guðmundar í föðurætt, var albróðir Jóns próf. í Glaumbæ Hallssonar. Kona Ólafs á Spáná og amma Guðmundar var Lilja Þorsteinsdóttir bónda á Heiði í Sléttuhlíð, Þorsteinssonar stúdents og fræðim., Guðmundssonar prests að Barði í Fljótum. Guðmundur var einn í hópi 8 systkina. 15 ára gamall réðst hann í vist til Jóns bónda á Marbæli í Óslandshlíð Erlendssonar og konu hans Önnu Rögnvaldsdóttur og var hjá þeim mætu hjónum unz hann, fullorðinn maður, flutti til frændfólks síns á Reynistað, Jóns bónda og alþm. Sigurðssonar og konu hans Sigrúnar Pálmadóttur, og átti þar heima alla ævi síðan, þótt eigi dveldist þar óslitið framan af árum. Guðmundur stundaði nám í Hólaskóla og lauk búfræðiprófí 1926. hann var síðan vetrarmaður á nokkrum stöðum, m.a. á Egg í Hegranesi, kaupamaður sumarlangt á Egilsá á Norðurárdal, stundaði vegavinnu um skeið hjá Jóhanni Hjörleifssyni verkstjóra, vann að skurðgrefti í Staðarhreppi meðan það starf var handunnið, - þrekmikill dugnaðar- maður og eftirsóttur til starfa. En meginhluta starfsævi sinnar vann þó Guðmundur á Reynistaðarheimilinu, hafði Guðmundur H. þar með höndum fjárgæzlu um vetur meðan Sigurðsson heilsa entist. Hann var samgróinn því heimili og mun trauðla hafa getað hugsað sér að hverfa þaðan. Hann starfaði lengi í ungmennafélagi sveitarinnar og reyndist þar drjúgur og og farsæll liðsmaður. Guðmundur Sigurðson var hár maður og þrekvaxinn, stirðlegur nokkuð í hreyfingum, svipmikill ásýndum en eigi smáfríður. Hann var prýðilega greindur, víðlesinn og margfróður, m.a. í ættvísi, enda stálminnugur. Hann var mikil trúleiksmaður, hollur húsbændum, hollur félagslegum hugsjónum, sjálfstæður í skoðunum, hlédrægur maður og tranaði sér hvergi fram, traustur maður og skilorður og mátti í engu vamm sitt vita. Guðmundur kvæntist eigi né átti afkomendur.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Glóðafeykir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.