Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 66

Glóðafeykir - 01.12.1987, Síða 66
66 GLÓÐAFEYKIR Jón Þ. Stefánsson, f. bóndi í Grænumýri (áður Hjaltastaðakot) í Blönduhlíð, andaðist hinn 22. nóv. 1976. Hann var fæddur aðÞveráí Blönduhlíð26. nóv. 1901,sonur Stefáns bónda þar Sigurðssonar og konu hans Hjörtínu Hannesdóttur. Var Jón albróðir Ingibjargar húsfreyju á Vöglum, sjá Glóðaf. 1976, 17.h. bls. 66, en hálfbróðir, samfeðra, Stefáns bónda á Hofsstöðum, Glóðaf. 1971, 12.h. bls. 46. Jón óx upp með foreldrum sínum og systkinum á Þverá, miklu myndarheimili. Snemma reyndist hann hagur og drjúgur til verka sem þeir bræður allir, sláttumaður ágætur. Hann stundaði nám í Hólaskóla tvo vetur og lauk búfræðiprófi árið 1924. Hafði Páll skólastjóri Zóphóníasson á honum miklar mætur. Að loknu námi réðst Jón til plæginga með Kristni á Hólum, síðar bónda á Mosfelli, Guðmundssyni, kunnum plæg- ingamanni úr Borgarfirði syðra, og nam af honum listina með þeim árangri, að Kristinn, sem var alkunnur dugnaðarmaður, taldi Jón einn hinn allra bezta mann, sem með sér hafði unnið. Árið 1926, hinn 18. júlí, kvæntist Jón Gunnhildi Björnsdóttur prófasts á Miklabæ í Blönduhlíð, Jónssonar hreppstj. í Broddanesi vestur, Illugasonar, Illugasonar bónda á Hvalsá, Illugasonar, og konu hans Guðfinnu Jensdóttur bónda á Veðrará innri í Önundarfirði, Jónssonar bónda í Hjarðardal í Önundarfírði, Guðlaugssonar, en kona Jens á Veðrará og móðir Guðfinnu var Sigríður Jónatansdóttir á Vöðlum Jónssonar í Múla í Gufudalssveit. Er Gunnhildur ein hin ágætasta kona um alla hluti, sem hún á kyn til. Lifir hún mann sinn ásamt sonum þeirra hjóna tveim: síra Birni, presti á Akranesi og Stefáni, bónda í Grænumýri. Ungu hjónin, Jón og Gunnhildur, hófu þegar eftir að giftust, búskap á Þverá á móti foreldrum Jóns, þá í Axlarhaga 1928-1930, er þau fluttust að Miklabæ og voru þar eitt ár í húsmennsku, bjuggu í Sólheimum í Blönduhlíð, hálflendunni, 1931-1933. Fóru þá í Hofstaði og voru þar til vors 1935, er þau fluttust í Hjaltastaðakot, nú Grænumýri, og keyptu jörðina ári síðar. Var þá lokið 9 ára hrakhólabúskap þeirra hjóna og sköpum skipt. Jón var mikill eljumaður og hvert verk lék honum í hendi. I Hjaltastaðakoti beið hans verkefni við hæfi. Og hann tók þegar til hendi, eigi brast áhuga né aðfarir. Lítið kot og eigi gagnsamt reisti Jón Þ. Stefánsson

x

Glóðafeykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.