Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 69

Glóðafeykir - 01.12.1987, Page 69
GLÓÐAFEYKIR 69 bjuggu svo foreldrar Ingibjargar unz dagar Björns voru uppi, en hann lézt 21. okt. 1956. Jóhanna, ekkja hans, lifír enn, áttræð að aldri, og hefur nú dvalizt um hríð á Héraðssjúkrahúsi Skagfirðinga á Sauðárkróki. Hinn 16. nóv. 1938 giftist Ingibjörg Hrólfi bónda í Kolgröf á Efribyggð Jóhmnesyrú og Maríu Guðmunds- dóttur, síðar bústýru Helga bónda á Miðsitju í Blönduhlíð Guðnasonar, sjá þátt um Jóhannes í Glf. 1970, 11. h. bls.56. Hafði þá Hrólfur búið í Kolgröf frá 1932 og lengstum móti Bimi bróður sínum. Fór Ingibjörg þegar til bús með Hrólfi og bjuggu þau í Kolgröf til 1962, er þau seldu jörðina, sem þau höfðu löngu keypt, brugðu búi og fóru byggðum til Sauðárkróks, keyptu íbúðarhús og áttu þar heima æ síðan. Hrólfur var góður bóndi, Ingibjörg hyggin húsmóðir og hallaðist þar í engu á. Síðustu árin allmörg hefur Hrólfur verið starfsm. Kaupfél. Skagf. Fimm urðu börn þeirra hjóna og lifa öll: María, húsfr. á Akureyri, Jóhanna Bima, húsfr. að Felli í Sléttuhlíð, Bragi Stefán, bifvélavirki á Sauðárkróki, Sœmundur, rafvélavirki á Akureyri og Sigríður Björg, húsfr. í Hveragerði. Ingibjörg frá Kolgröf var naumlega meðalkona á vöxt, geðfelld í sjón og raun, greind kona, glaðleg og hlý í viðmóti, fínleg að allri gerð. Hún var góð eiginkona og góð móðir, félagslynd að eðli, en hljóðlát og íhugul, gestrisin og góðviljuð, trúhneigð koma, vinsæl og vel metin af öllum, er til þekktu. Ingibjörg Bjömsdóttir Sigurður Ólafsson, fræðim. á Kárastöðum í Hegranesi, lézt hinn 27. des. 1976. Hann var fæddur að Hróarsdal í Hegranesi 29. okt. 1892. Foreldrar: Ólafur, þá húsm. þar, Guðmundsson, albróðir Þorsteins á Víðivöllum, sjá Glóðaf. 1970, 11. h. bls. 70, og kona hans Sigurbjörg Jónasdóttir bónda og smáskammtalæknis í Hróarsdal, Jónssonar bónda þar, Benediktssonar s.st., og 2. kona hans Elísabet Gísladóttir bónda á Lóni í Viðvíkursveit o. v. Ingimundarsonar bónda á Litlahóli í sömu sveit, Þorgrímssonar, og konu hans Önnu Halldórsdóttur bónda á Höskuldsstöðum í Blönduhlíð, Brynjólfssonar. Sigurður óx upp með foreldrum sínum, bernskuárin fyrstu í

x

Glóðafeykir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Glóðafeykir
https://timarit.is/publication/1145

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.